VELKOMIN Í KRAUMA

Krauma er staðsett hjá Deildartunguhver, skammt frá Reykholti.

Krauma er í 97 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.

Komdu við í Krauma og upplifðu sjarma Vesturlands.

BÓKA NÚNA

EINSTÖK UPPLIFUN Í GJÖF

 KJARNAÐU ÞIG Í KRAUMA

​​KAUPA GJAFABRÉF

Við bjóðum upp á tilbúin gjafabréf fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem hægt er að kaupa á heimasíðu Dineout, en með gjafakorti Krauma gefur þú slökun og vellíðan frá kjarna íslenskrar náttúru.

GJAFABRÉF í KRAUMA

Með gjafakorti Krauma gefur þú slökun og vellíðan frá kjarna íslenskrar náttúru. 

Náttúrulaugarnar innihalda hreint og tært vatn, beint úr Deildartunguhver, sem kælt er niður í gegnum varmaskipta. Í laugunum er því eingöngu hveravatn. Laugarnar eru sex talsins, fimm heitar og ein köld. Engum sótthreinsandi efnum er bætt í vatnið, heldur er hreinleiki þess tryggður með mjög miklu vatnsrennsli í laugarnar.



Í aðalbyggingu er veitingastaður sem rúmar 70 manns í sæti og 60 á útisvæði þegar veður leyfir. Á veitingastaðnum er lögð áhersla á ferskt hráefni úr héraði með áherslu á gæði. Við bjóðum upp á létta rétti ásamt kaffi og meðlæti.

Hafðu samband við okkur og fáðu sérsniðið gjafabréf að þínum þörfum. 

Þeir sem eiga gjafabréf í Krauma vinsamlegast hafið samband og bókið tíma fyrirfram.

LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL

KJARNAÐU ÞIG Í KRAUMA

Í Krauma náttúrulaugum kemstu í beina snertingu við kjarna íslenskrar náttúru þegar þú baðar þig upp úr hreinu og tæru vatni úr Deildartunguhver sem er kælt niður í gegnum varmaskipta. Í laugunum er því eingöngu hveravatn.


Fimm heitar laugar og ein köld umvefja þig með hreinleika sínum sem er tryggður með miklu vatnsrennsli og engum sótthreinsandi efnum.


Njóttu þín í vatnsgufunni, infrarauða klefanum sem gefur af sér þægilegan hita sem nær djúpt inn í líkamann, útvíkkar æðar, örvar blóðrás, losar um spennu og róar líkamann, eða í hvíldarherberginu við snark úr arineldi. 


Fullkomnaðu daginn með notalegri stund á veitingastaðnum okkar sem býður upp á dýrindis rétti úr fersku hráefni úr héraði.


Láttu líða úr þér. Við erum til staðar allan ársins hring.

Skoða Instagram

DEILDARTUNGUHVER

Deildartunguhver í Reykholtsdal er vatnsmesti hver Evrópu. Hverinn er skýrt dæmi um þá ógnarorku sem býr í jörðinni, en kraumandi hverinn spúir upp um 180 lítrum af 100°C heitu vatni á sekúndu. Þessi náttúruauðlind hefur eflaust verið nýtt til þvotta og matarsuðu öldum saman en fyrir 80 til 90 árum var um 600 metra timburstokkur smíðaður til að flytja gufu að gamla húsinu í Deildartungu. Með gufunni mátti hita upp húsið og sjóða mat í gufupotti, auk þess sem íbúar gátu farið í heita sturtu og gufubað, sem þóttu einstök þægindi á þeim tíma.

HAFÐU SAMBAND

Share by: