Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. ágúst 2018 13:16
Magnús Már Einarsson
Sjáðu mörkin: U16 vann Kína og Færeyjar
Mynd: KSÍ
U16 ára landslið karla hefur unnið bæði Kína og Færeyja á opna Norðurlandamótinu í Færeyjum.

Í 2-1 sigri á Færeyjum í fyrsta leik skoraði Oliver Stefánsson sigurmarkið í lokin en Kristall Máni Ingason skoraði fyrra markið.

Í 3-0 sigrinum gegn Kína í fyrradag voru Eyþór Aron Wöhler og Andri Fannar Baldursson á skotskónum auk þess sem eitt markið var sjálfsmark.

Í kvöld klukkan 18:00 leikur Ísland síðasta leik sinn í riðlakeppninni á þegar það mætir Noregi. Með sigri í þeim leik spilar liðið um fyrsta sæti mótsins.

Hér að neðan má sjá mörkin úr leikjunum gegn Færeyjum og Kína.


Athugasemdir
banner
banner