þri 21. maí 2019 10:00
Arnar Daði Arnarsson
Dominos
Lið 5. umferðar - Tíu nýliðar
Ólafur Karl Finsen er í liðinu þrátt fyrir tap.
Ólafur Karl Finsen er í liðinu þrátt fyrir tap.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Björgvin Stefánsson skoraði eitt fyrir KR í 3-2 sigri á HK.
Björgvin Stefánsson skoraði eitt fyrir KR í 3-2 sigri á HK.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
5. umferðin í Pepsi Max-deild karla fór fram á sunnudag og mánudagskvöld. Grindavík vann sinn annan leik í röð á heimavelli og ÍA gerði sér lítið fyrir og vann sinn þriðja leik í röð með 1-0 sigri á Breiðabliki með marki í uppbótartíma.

Á Kaplakrikavelli vann síðan FH 3-2 sigur á Val í leik umferðarinnar.


Steven Lennon er að ná sér að fullu eftir meiðsli og var bestur FH-inga í sigrinum gegn Val. Ólafur Karl Finsen átti stórfínan leik á miðjunni hjá Val. Báðir skoruðu þeir sitthvort markið.

Gunnleifur Gunnleifsson er í markinu í liði umferðarinnar en hann þurfti að sætta sig við 1-0 tap á heimavelli gegn efsta liði deildarinnar, ÍA. Það var Einar Logi Einarsson sem gerði sér lítið fyrir og skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Stefán Teitur Þórðarson lagði upp markið fyrir ÍA.

Miðverðirnir í Grindavík Josip Zeba og Marc Mcausland eru í vörninni eftir 1-0 sigur á Fylki á heimavelli. Aðra umferðina í röð er Marc Mcausland í liði umferðarinnar.

Óskar Örn Hauksson og Björgvin Stefánsson fóru fyrir liði KR í 3-2 sigri liðsins á nýliðum HK en KR komst í 3-0 í leiknum.

Á teppinu í Garðabænum komu KA-menn í góða ferð og hirtu öll þrjú stigin. Þar skoraði Elfar Árni Aðalsteinsson eitt af mörkum KA og þá átti Hallgrímur Jónasson góðan leik í vörn KA.

Í Vestmannaeyjum enduðu leikar 1-1 í leik ÍBV og Víkings R. Það var enginn leikmaður úr þeim leik sem komast í lið 5. umferðar.

Þjálfari 5. umferðar í Inkasso-deildinni er þjálfari efsta lið deildarinnar, Jóhannes Karl Guðjónsson.

Sjá einnig:
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 9 8 0 1 14 5 +9 24
2 Man City 9 7 0 2 20 10 +10 21
3 Brighton 9 6 1 2 24 7 +17 19
4 Chelsea 9 5 1 3 19 15 +4 16
5 Liverpool 9 4 3 2 11 9 +2 15
6 Brentford 9 3 5 1 16 9 +7 14
7 Everton 9 3 4 2 9 9 0 13
8 Bournemouth 9 3 3 3 14 13 +1 12
9 Tottenham 9 3 3 3 10 10 0 12
10 Aston Villa 9 3 3 3 10 13 -3 12
11 Hull City 9 2 5 2 11 10 +1 11
12 Leeds 9 2 5 2 9 8 +1 11
13 Newcastle 9 3 2 4 12 15 -3 11
14 Ipswich Town 9 3 2 4 14 18 -4 11
15 Fulham 9 2 3 4 9 11 -2 9
16 Coventry 9 3 0 6 9 16 -7 9
17 Man Utd 9 1 4 4 10 15 -5 7
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
18 Crystal Palace 9 2 1 6 9 21 -12 7
19 Nott. Forest 9 1 3 5 6 12 -6 6
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Sunderland 9 1 2 6 7 17 -10 5
Slapp
banner