Selfyssingar hafa samið við spænska varnarmanninn Juan Povedano Martínez.
Juan var á reynslu hjá Selfyssingum í janúar en hann skoraði meðal annars í sigri liðsins á Stjörnunni í Fótbolta.net mótinu.
Juan var á reynslu hjá Selfyssingum í janúar en hann skoraði meðal annars í sigri liðsins á Stjörnunni í Fótbolta.net mótinu.
Juan er 33 ára gamall en hann var síðasta á mála hjá UD Melilla sem leikur í spænsku C-deildinni. Þá lék hann með varaliði Atletico Madrid á sínum tíma.
Selfyssingar sömdu einnig við spænska framherjann Javier Zurbano Lacalle á dögunum.
Miklar breytingar eru á leikmannahópi Selfyssinga síðan í fyrra en 19 leikmenn eru horfnir á braut og tíu aðrir komnir í þeirra stað.
Athugasemdir