Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA í fyrstu deildinni, var ekki nógu sáttur með 1-1 jafnteflið sem liðið gerði við Aftureldingu í Lengubikarnum í gær.
Afturelding komst yfir í leiknum í Akraneshöllinni í gær áður en Garðar jafnaði metin en Garðar segir að spilamennska liðsins hafi ekki verið góð fyrsta klukkutíma leiksins.
,,Nei, alla vega ekki fyrstu 55-60 mínúturnar. Þá fannst mér eins og við værum á hálfri ferð en það sást hvers megnugir við erum undir lokin og við settum eitt," sagði Garðar við Fótbolta.net.
,,Ég er auðvitað sáttur við að skora en ég hefði viljað vinna þennan leik heldur en að skora," sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir