Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 10. maí 2008 07:25
Fótbolti.net
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 7. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Björn Berg Gunnarsson
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjöunda sætinu var Grótta sem fékk 116 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Gróttu.


7. Grótta
Búningar: Blá og svört langröndótt treyja, bláar buxur, bláir sokkar.
Heimasíða: http://www.grottasport.is

Eftir mörg mögur ár er Grótta loksins komið þangað sem liðið hefur stefnt að í mörg herrans ár. Liðið hefur verið grátlega nálægt því að komast upp í 2. deild á undanförnum árum en á síðustu leiktíð small allt saman og liðið tryggði sér örugglega sæti í deildinni. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig liðinu gengur að stilla sína strengi á þessari leiktíð en margir hafa beðið spenntir eftir að fá Gróttu upp úr 3. deildinni.

Grótta hafði á að skipa í fyrra afar sterku liðið og tapaði liðið einungis tveimur leikjum allt sumarið í 3. deildinni. Liðið tryggði sér á afar sannfærandi hátt upp um deild og það velktust engir í vafa að Grótta væri eitt allra sterkasta liðið í deildinni. Það er aðeins annað upp á teningnum í ár. Illa hefur gengið að binda leikmannahóp liðsins saman og t.a.m. notaði Grótta 29 leikmenn í aðeins fimm leikjum í Lengjubikarnum og var árangurinn eftir því. Aðeins einn sigur í fimm leikjum á pappírnum en liðið lagði KFS og Sindra en var dæmdur leikurinn gegn KFS tapaður sökum að liðið var ólöglega skipað.

Gengi Gróttu í sumar veltur ansi mikið á því hvaða leikmenn munu koma til með að leika með liðinu í sumar. Það er ljóst að lið sem notar slíkan fjölda leikmanna mun aldrei gera neinar rósir og verður Ásmundur Haraldsson, þjálfari liðsins, helst að finna þann kjarna sem mun leika í sumar og það fljótt. Liðið hefur fengið nokkra leikmenn til að styrka sig fyrir átökin sem framundan eru.

Davíð Logi Gunnarsson gekk í raðið félagsins eftir skamma dvöl hjá Leikni og einnig gekk Einar Óli Þorvarðarson frá félagaskiptum úr Aftureldingu. Einnig hafa nokkrir minna þekktir leikmenn komið til félagsins en það verður gaman að sjá hvernig þeir eiga eftir að reynast liðinu. Liðið hefur hins vegar misst Garp Elísabetarson, Árna Inga Pjetursson og Bjarna Óskar Þorsteinsson. Árni Ingi lék reyndar ekki mikið með liðinu í fyrra en hann skoraði þó fimm mörk í fjórum leikjum fyrir liðið. Það reynir mikið á lykilmenn liðsins í sumar en þeir Brynjólfur Bjarnason og Sölvi Davíðsson voru atkvæðamiklir fyrir liðið í fyrra ásamt Grétari Ali Kahn.

Það er löngu kominn tími á að Grótta leiki í 2. deild og það reynir nú á Ásmund Haraldsson að halda Gróttu á sömu braut og liðið var í fyrra. Slíkt verður vissulega erfitt þar sem deildin er töluvert sterkari en 3. deildin var en markmið Gróttu hlýtur fyrst og fremst að vera að koma sér vel fyrir í 2. deildinni og byggja ofan á því á næstu árum.

Styrkleikar: Sóknarleikur liðsins á væntanlega eftir að verða sterkur en liðið skoraði fjölda marka í fyrra. Brynjólfur Bjarnason er seigur ásamt því að liðið hefur fengið tvo nýja framherja, Davíð Loga Gunnarsson og Einar Óla Þorvarðarson. Þá er mikill uppgangur í Gróttu og það gæti hjálpað félaginu í sumar.

Veikleikar: Liðið notaði 29 leikmenn í Lengjubikarnum sem verður að teljast veikleikamerki, að ekki sé kominn ákveðinn mynd á liðið svona stuttu fyrir mót. Þá er spurning hvernig varnarleikurinn verður og hvernig miðvarðaparið verður skipað.

Lykilmenn: Brynjólfur Bjarnason, Sölvi Davíðsson og Grétar Ali Kahn

Þjálfari: Ásmundur Haraldsson. Hefur gert fína hluti með liðið og stýrði því á sannfærandi hátt upp úr 3. deildinni í fyrra.

Komnir: Davíð Logi Gunnarsson frá Leikni, Einar Óli Þorvarðarson frá Aftureldingu, Grétar Brynjólfsson frá Þrótti, Guðmundur Marteinn Hannesson frá Selfossi, Jason Bergsteinsson frá KR, Steinn Friðriksson frá KR, Sindri Tryggvason frá Stjörnunni, Tómas Emil Guðmundsson frá BÍ.

Farnir: Árni Ingi Pjetursson í ÍA, Benedikt Jóhann Bjarnason í Skallagrím, Bergur Dan Gunnarsson í Aftureldingu, Bjarni Óskar Þorsteinsson í Þrótt, Garpur I Elísabetarson í KV, Gunnar Egill Daníelsson í Augnablik, Sveinn Guðmundsson í Álftanes, Þór Ólafsson í Leikni.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Grótta 116 stig
8. Tindastóll 103 stig
9. Völsungur 73 stig
10. ÍH 67 stig
11. Magni 59 stig
12. Hamar 30 stig
Slapp
banner
banner