Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 11. maí 2008 07:30
Fótbolti.net
Spá fyrirliða og þjálfara í 2.deild karla: 6. sæti
Mynd: Fótbolti.net - Jón Örvar Arason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.

Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjötta sætinu urðu Reynismenn sem fengu 161 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Reyni..


6. Reynir Sandgerði
Búningar: Hvít treyja, bláar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.reynir.is

Það hafa orðið töluverðar breytingar á liði Reynis frá því á síðustu leiktíð. Liðið hafnaði í neðsta sæti 1. deildar á síðustu leiktíð og varð því eina liðið sem fékk það lítt eftirsótta hlutskipti að falla niður í 2. deild. Það hefur oft reynst liðum erfitt að falla úr 1. deild og fara beint aftur upp og miðað við spá fyrirliða og þjálfara í deildinni þá telja þeir að tímabilið verði ekki gæfuríkt suður með sjó.

Það var ljóst strax síðasta haust að miklar breytingar yrðu hjá Reyni. Jakob Jónharðsson lét af störfum sem þjálfari og eftir mikið japl, jaml og fuður réð liðið Bryngeir Torfason sem þjálfara félagsins. Hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Fjölni og Fylki meðal annars á undanförnum árum og gerði m.a. Fylki að Íslandsmeisturum í 2. flokki á síðustu leiktíð.

Hann tók við erfiðu búi má segja þar sem margir af lykilmönnum liðsins höfðu yfirgefið herbúðir félagsins. Hafsteinn Rúnar Helgason gekk í raðið Stjörnunnar á meðan nafni hans Hafsteinn Ingvar Rúnarsson gekk í raðir Keflavíkur. Einnig yfirgáfu menn eins og Árni Freyr Guðnason, Tómas Agnarsson, Martin Bach Christansen og Brynjar Örn Guðmundsson, félagið.

Það var því ljóst að Bryngeir þurfti nánast að byggja upp liðið frá grunni. Til þess að gera slíkt þá þurfti hann að fá töluverðan fjölda leikmanna til liðsins til að geta úbúið öfluga breinagrind fyrir liðið. Hefur honum tekist að fá fjölda leikmanna til sín en ósagt skal látið um getu þessara leikmanna. Helsta ber þá að nefna Stefán Örn Arnarsson sem leikið hefur með Keflavík og Víkingi undanfarin ár við ágætis orðstýr. Hefur hann skorað oft á tíðum grimmt og mun reynast liðinu afar dýrmætur í sumar. Davíð Örn Hallgrímsson kemur frá Keflavík, Sigurður Donys gekk í raðið liðsins en hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli undanfarin ár en enginn velkist í vafa um getu piltsins.

Liðið fékk einnig markvörðinn Helga Má Helgason frá Grindavík og ætti það að vera talsverður styrkur enda Helgi geysilega öflugur markvörður. Siðast en alls ekki sístan ber að nefna Martein Guðjónsson. Hann hefur leikið með Njarðvík undanfarin fjögur keppnistímabil. Marteinn er feykilega öflugur leikmaður og oft á tíðum vanmetinn og mun styrkja liðið til mikilla muna ef hann helst heill í sumar.

Styrkleikar: Heimavöllur liðsins ætti að verða ansi drjúgur í sumar. Það hefur sýnt sig undanfarin ár að það er erfitt að fara á Sparisjóðsvöllinn í Sandgerði og sérstaklega með Hvíta Herinn á pöllunum. Mikil stemming sem er hjá félaginu sem ætti að vera liðinu til góða í sumar.

Veikleikar: Spurning hversu mikil áhrif þessar miklu breytingar munu hafa í för með sér. Fjölmargir nýjir leikmenn og það gæti tekið einhvern tíma fyrir liðið að slípast í sumar.

Þjálfari: Bryngeir Torfason. Hefur þjálfað yngri flokka með ágætum árangri í gegnum tíðina en slíkt er allt annar handleggur en að þjálfa lið í 2. deild. Mun mikið mæða á honum í sumar en Sandgerðingar vilja sem fyrst aftur upp í 1. deild og sætta sig ekki við neina meðalmennsku.

Lykilmenn: Stefán Örn Arnarsson, Helgi Már Helgason og Davíð Örn Hallgrímsson.

Komnir: Stefán Örn Arnarsson frá Keflavík, Helgi Már Helgason frá Grindavík, Guðni Páll VIktorsson frá Stjörnunni, Fannar Óli Ólafsson frá Keflavík, Fannar Berg Gunnólfsson frá GG, Pétur Róbert Macilroy frá Noregi, Sigurður Donys Sigurðsson frá Skallagrími, Sveinn Vilhjálmsson frá Danmörku, Marteinn Guðjónsson frá Njarðvík, Eyjólfur Páll Víðisson frá Danmörku,

Farnir: Árni Freyr Guðnason í ÍR, Tómas Agnarsson í ÍR, Martin Bach Christansen til Danmerkur, Atli Jónasson í Hauka, Rasmus Kruger til Danmerkur, Hafsteinn Ingvar Rúnarsson til Keflavíkur, Brynjar Örn Guðmundsson til Keflavíkur, Andrés Magnús Eggertsson í Þrótt Vogum, Jacob Serwin til Danmerkur, Hafsteinn Rúnar Helgason í Stjörnuna.


Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Reynir Sangerði 161 stig
7. Grótta 116 stig
8. Tindastóll 103 stig
9. Völsungur 73 stig
10. ÍH 67 stig
11. Magni 59 stig
12. Hamar 30 stig
Slapp
banner
banner