Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sætinu var Hvöt sem fékk 176 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Hvöt.
5. Hvöt
Búningar: Hvít treyja, rauðar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.hvotfc.is
Nýliðunum í Hvöt er spáð góðu gengi í sumar ef spá fyrirliða og þjálfara rætist í haust. En það er ljóst að nýliðarnir ætla sér stóra hluti í sumar og sýndu það strax á haustdögum þegar liðið félagið réð Kristján Óla Sigurðsson sem spilandi þjálfara. Hann hefur leikið undanfarin ár með Breiðablik í Landsbankadeild karla og er gífurlegur styrkur fyrir liðið enda afar öflugur leikmaður. Hann er að stíga sín fyrstu spor sem þjálfari í meistaraflokki en hann mun í það minnsta nýtast liðinu afar vel inni á vellinum.
Hann þekkir vel til í Kópavoginum og því lá beinast við að leita þangað þegar líta átti eftir leikmönnum. Fékk hann til sín Ágúst Ágústsson sem hefur leikið með Breiðablik og Fjölni m.a. og Ragnar Heimir Gunnarsson sem átti frábæra leiktíð með Fjölni í 1. deildinni í fyrra. Koma þessara tveggja manna mun án efa styrkja liðið gífurlega. Tveir leikmenn ákváðu einnig að færast nær Reykjavík en þeir Árni Einar Adolfsson og Bjarni Pálmason gengu einnig í raðið félagsins. Árni Einar átti afar gott tímabil með KS/Leiftri í fyrra þegar liðið tryggði sér sæti í 1. deild og Bjarni Pálmason ætti að geta nýst liðinu heldur betur vel en hann skoraði 16 mörk í 11 leikjum með Hömrunum í 3. deildinni í fyrra og er feykilega öflugur framherji sem nýtir færin sín afar vel.
Einnig hefur liðið fengið Edin Ganjac, Hjalta Guðmundsson og síðast en ekki síst stórstjörnurnar Egill “Gilzenegger” Einarsson og Auðunn Blöndal. Óvíst er með þáttöku þess síðarnefnda sökum ökklameiðsla en ekki er talið líklegt að þeir leiki mikið með liðinu í sumar. Þess að auki hafa nokkrir minni spámenn gengið í raðir liðsins en liðsstyrkurinn sem Hvöt hefur fengið er talsverður og skyldi því engan undra að liðinu sé spáð ágætis gengi í sumar.
Liðið hefur misst nokkra leikmenn og má nefna þar á meðal Ásgeir Örn Jóhannsson sem fór til Magna og einnig hélt Einar Ingi Jóhannsson í Garðarbæinn þar sem hann er borinn og barnfæddur. Liðið hefur klárlega styrkst frá því í fyrra þrátt fyrir brotthvarf einhverra leikmanna því styrkurinn er afar mikill í þeim leikmönnum sem Kristján Óli hefur fengið til liðsins.
Undirbúningstímabilið gekk vonum framar hjá liðinu og það mátti litlu muna að fyrsti titillinn hjá Hvöt undir stjórn Kristjáns Óla liti dagsins ljós en liðið fór alla leið í Lengjubikarnum þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir ÍR í úrslitaleik. Frammistaða liðsins í riðlakeppninni var með hreinum ágætum og sýndi liðið þar að allt er hægt í sumar þegar út í alvöruna er komið.
Styrkleikar: Leikmannahópur Hvatar feykilega sterkur og einnig er ljóst að sá mikli uppgangur sem á sér stað á Blönduósi mun hjálpa liðinu yfir erfiðustu hjallana í sumar.
Veikleikar: Það er á engan hallað þegar sagt er að breiddin sé veikleiki Hvatar. Liðið hafði stundum aðeins á að skipa þremur varamönnum í vetur í Lengjubikarnum og slíkt boðar aldrei gott. Liðið má illa við skakkaföllum.
Lykilmenn. Kristján Óli Sigurðsson, Gissur Jónasson, Ragnar Heimir Gunnarsson.
Þjálfari: Kristján Óli Sigurðsson. Er blautur á bakvið eyrun hvað þjálfun varðar en hann mun vera algjör lykilmaður hjá liðinu innan vallar og verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr honum þar í sumar.
Komnir: Auðunn Blöndal frá Skallagrími, Ágúst Þór Ágústsson frá Breiðablik, Ragnar Heimir Gunnarsson frá Breiðablik, Sigmar Ingi SIgurðarson frá ÍH, Hjalti Guðmundsson frá Snerti, Kristján Óli Sigurðsson frá Breiðablik, Árni Einar Adolfsson frá KS/Leiftri, Guðmundur Kristinn Vilbergsson frá Tindastól, Edin Ganjac frá Bosníu, Bjarni Pálmason frá Hömrunum.
Farnir: Ásgeir Örn Jóhannsson í Magna, Einar Ingi Jóhannsson í Stjörnuna, Paul John Kenworthy til Englands, Gunnar Ásgeirsson í Hamar, Zoran Djordjevic til Serbíu.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. Hvöt 176 stig
6. Reynir Sangerði 161 stig
7. Grótta 116 stig
8. Tindastóll 103 stig
9. Völsungur 73 stig
10. ÍH 67 stig
11. Magni 59 stig
12. Hamar 30 stig




