Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fjórða sætinu var Afturelding fékk 182 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Aftureldingu.
4. Afturelding
Búningar: Rauð treyja, svartar buxur, rauðir sokkar.
Heimasíða: http://www.afturelding.is
Það verður forvitnilegt að sjá hvað kjúklingabændurnir úr Mosfellsbæ gera þetta árið en undanfarin tvö ár hefur liðinu verið spáð 3. sæti deildarinnar en í bæði skiptin hefur liðinu fatast flugið þegar út í alvöruna er komið. Undirbúningstímabilið hefur farið vel hjá liðinu og liðið vann t.a.m. Lengjubikarinn á síðustu leiktíð. En því miður fyrir þá hefur liðinu ekki tekist að halda dampi yfir sumartímann og vonbrigðin verið mikil í Mosfellsbænum.
Til að styrkja liðið fyrir átökin í sumar hefur Ólafur Ólafsson, þjálfari liðsins, fengið nokkra öfluga leikmenn. Fyrstan ber að nefna Paul Clapson en þessi breski framherji kom til liðsins eftir að hafa leikið í Færeyjum. Hann virðist hafa genin frá Aftureldingu því drengurinn hefur verið gífurlega öflugur á undirbúningstímabilinu og skorað grimmt.
Það er vonandi fyrir Aftureldingu að hann haldi áfram á sömu braut því þá eru Mosfellingar í góðum málum. John Andrews kom einnig frá Bretlandseyjum en þessi Íri er stór og stæðilegur miðvörður sem mun koma með ákveðna reynslu í liðið sem liðinu hefur skort á undanförnum árum. Einnig hafa gengið í raðið liðsins þrír efnilegir piltar en þeir Hákon Helgi Bjarnason, Bergur Dan Gunnarsson og Högni Haraldsson munu án efa styrkja hópinn og auka breiddina fyrir sumarið.
Að sama skapi hefur liðið misst nokkra leikmenn frá síðasta sumri. Guðjón Þórunn Frímannsson ákvað að söðla um og mun leika með ÍH í sumar en hann skoraði þrjú mörk í tólf leikjum á síðustu leiktíð.
Ein stærsta blóðtakan var hins vegar þegar fyrirliðinn Gunnar Borgþórsson gekk í raðir Selfyssinga. Hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár og verið sterkur póstur bæði innan vallar sem utan og er því mikill missir fyrir liðið að sjá á eftir Gunnari. Eftir að hafa gefið sig allan í sína spilamennsku og störf fyrir félagið ákvað hann loksins að söðla um og skipta í Selfoss.
Styrkleikar: Á góðum degi getur Afturelding unnið öll lið í deildinni enda er leikmannahópur liðsins nokkuð þéttur. Liðið hefur haldist nokkurn veginn og kjarninn er öflugur. Samheldnin ætti að geta fleytt liðinu yfir erfiðustu hjallana í sumar ef fram heldur sem horfir. Sóknarleikur liðsins ætti að vera í fínu lagi með þá Paul Clapson og Rannver Sigurjónsson í fremstu vigilnu.
Veikleikar: Heimavöllur liðsins mun því miður seint vera kölluð mikil ljónagryfja en árangurinn þar er sjaldnast yfir 50% vinningshlutfall. Slíku þurfa Mosfellingar að breyta ásamt því að ná meiri stöðugleika í sinn leik. Stöðugleikinn gæti orðið þeirra helsti veikleiki í sumar.
Þjálfari: Ólafur Ólafsson. Hann hefur unnið gott starf í Mosfellsbænum og það er spurning hvort hann muni uppskera laun erfiðisins í sumar eftir farsælt starf fyrir félagið. Klókur þjálfari og sýnt það á undanförnum árum.
Lykilmenn: Paul Clapson, Albert Ástvaldsson, Rannver Sigurjónsson.
Komnir: John Andrews frá Bandaríkjunum, Högni Haraldsson frá ÍA, Hákon Bjarnason frá Fram, Bergur Dan Gunnarsson frá Gróttu, Paul Clapson frá Færeyjum, Matej Grobovsek frá Víkingi Ólafsvík.
Farnir: Gunnar Borgþórsson í Selfoss, Guðjón Frímann Þórunnarson í ÍH, Helgi Þór Guðjónsson í Hvíta riddarann.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. ?
4. Afturelding 182 stig
5. Hvöt 176 stig
6. Reynir Sangerði 161 stig
7. Grótta 116 stig
8. Tindastóll 103 stig
9. Völsungur 73 stig
10. ÍH 67 stig
11. Magni 59 stig
12. Hamar 30 stig


