Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í þriðja sætinu var Höttur sem fékk 186 stig af 242 mögulegum. Kíkjum á umfjöllun okkar um Hött.
3. Höttur
Búningar: Hvít treyja, svartar buxur, hvítir sokkar.
Heimasíða: http://www.hottur.blogdrive.com
Fyrirliðar og þjálfara í deildinni hafa mikla trú á liði Hattar þetta árið. Liðinu er spá góðu gengi í sumar eða 3. sæti deildarinnar en ef menn þekkja Njál Eiðsson rétt þá er alveg á hreinu að hann sættir sig ekki við slíkt heldur stefnir ótrautt á að koma liðinu upp um deild. Njáll er á sínu öðru ári með liðið og handbragð hans er farið að sjá á liðinu. Í Lengjubikarnum sýndi liðið að varnarleikurinn verður þeirra sterkasti hluti í sumar en liðið fékk aðeins á sig fjögur mörk í fimm leikjum. Það dugði liðinu til að vinna sinn riðil en það voru ÍR-ingar sem stoppuðu Hattarmenn í undanúrslitum.
Til að styrkja liðið fyrir komandi átök hefur Njáll fengið til sín nokkra öfluga leikmenn. Henrik Boedker kom frá ÍBV en hann mun styrkja liðið gífurlega enda feykilega öflugur markvörður eins og hann sýndi á síðustu leiktíð með ÍBV. Hann kaus að leika með Hetti þrátt fyrir að lið úr 1. deildinni hefðu áhuga á kappanum.
Njáll náði einnig í Víglund Pál Einarsson sem hefur leikið með Þór Akureyri undanfarin ár. Hann mun einnig sinna hlutverki aðstoðarþjálfara og mun reynsla hans nýtast liðinu vel í efri hluta deildarinnar í sumar. Þórarinn Máni Borgþórsson kemur til liðsins frá Aftureldingu en hann þekkir Austurlandið vel enda uppalinn hjá Hetti.. Hann mun styrkja miðjuspilið hjá Hetti og er koma hans mikill styrkur fyrir liðið. Þá samdi Höttur í vetur við danska framherjann Jeppe Opstrup en hann hefur leikið frábærlega með liði Huginn undanfarin ár.
Aftur á móti hefur liðið missti nokkra leikmenn og helstan ber að nefna Dennis Curic sem ákvað að ganga í raðir Hauka. Það er mikill missir fyrir Hattarmenn enda Curic feykilega öflugur leikmaður sem var valinn meðal annars í lið ársins í 2. deildinni á síðustu leiktíð á Fótbolta.net. Einnig gekk Hafþór Atli Rúnarsson í raðir Spyrnis en hann lék lítinn hluta leikja Hattar á síðustu leiktíð eða sjö talsins.
Ef Höttur ætlar að fara langt í sumar þá er ljóst að liðið þarf að byrja betur en á síðustu leiktíð. Í fyrra töpuðust fyrstu fimm leikirnir á tímabilinu og varð sú byrjun liðinu að falli. Byrjunin mun skipta miklu fyrir liðið og eru leikmenn liðsins eflaust með byrjun síðasta tímabils á bakvið eyrað.
Styrkleikar: Varnarleikur Hattar verður þeirra aðalsmerki í sumar. Heimavöllurinn gæti verið erfiður heim að sækja enda slíkt nauðsynlegt ætli liðið sér langt í sumar.
Veikleikar. Það er spurning hvernig sóknarleikur liðsins verður í sumar. Liðið skoraði níu mörk í fimm leikjum í Lengjubikarnum og gæti brotthvarf Dennis Curic haft mikið að segja fyrir liðið.
Þjálfari: Njáll Eiðsson. Einn reyndasti þjálfari landsins stýrir liði Hattar en Njáll ætlar sér eflaust að sýna úr hverju hann og hans menn eru gerðir í sumar.
Lykilmenn: Henrik Bödker, Stefán Þór Eyjólfsson, Jeppe Opstrup.
Komnir: Jeppe Opstrup frá Huginn, Henrik Bödker frá ÍBV, Þórarinn Máni Borgþórsson frá Aftureldingu, Tómas Arnar Emilsson frá Huginn, Víglundur Páll Einarsson frá Þór, Óttar Steinn Magnússon frá Keflavík.
Farnir: Denis Curic í Hauka, Francis Christopher Mcbrearty til Norður-Írlands, Hafþór Atli Rúnarsson í Spyrni.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. ?
2. ?
3. Höttur 186 stig
4. Afturelding 182 stig
5. Hvöt 176 stig
6. Reynir Sangerði 161 stig
7. Grótta 116 stig
8. Tindastóll 103 stig
9. Völsungur 73 stig
10. ÍH 67 stig
11. Magni 59 stig
12. Hamar 30 stig




