Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 08. júní 2009 17:40
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vísir.is 
Jónas Guðni á reynslu hjá Halmstad
Jónas Guðni Sævarsson.
Jónas Guðni Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði KR er þessa stundina í Svíþjóð þar sem hann er á reynslu hjá Halmstad en frá þessu var greint á fréttavefnum Vísir.is í dag.

Þar kemur fram að Jónas Guðni hafi farið utan í gær og snúi aftur heim á morgun en á þeim tíma nær hann að spila einn æfingaleik og taka þátt í einni æfingu.

Jónas Guðni hefur verið gríðarlega sterkur á miðjunni hjá KR í sumar og síðasta sumar. Hann hafði komið til félagsins frá Keflavík haustið 2007 og varð strax á fyrsta ári fyrirliði KR þegar Gunnlaugur Jónsson þáverandi fyrirliði var frá vegna meiðsla.

KR hefur ekkert leikið síðan í jafnteflinu gegn Fylki 1. júní síðastliðinn og leikur næst gegn fyrrum félögum Jónasar Guðna í Keflavík 14. júní en hléið kom vegna tveggja landsleikja Íslendinga.
Athugasemdir
banner
banner
banner