Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. apríl 2011 17:06
Magnús Már Einarsson
Mark Redshaw í Fram (Staðfest)
Framarar hafa samið við enska framherjann Mark Redshaw en hann hefur verið á reynslu hjá liðinu undanfarna daga. Mark, sem er 26 ára, verður hjá Fram út júní til að byrja með en framhaldið verður skoðað þá.

Undanfarin tvö ár hefur Mark verið á mála hjá gríska liðinu Ethnikos Pieraus, en hann var á láni hjá spænska liðinu Real Murica II á síðustu leiktíð.

Framarar mæta ÍBV í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar á mánudag og Mark verður með liðinu í þeim leik.

Allan Lowing, 22 ára varnarmaður frá Skotlandi, hefur einnig verið hjá Fram á reynslu að undanförnu en ekki er búið að taka ákvörðun um það hvort hann verði með liðinu í sumar eða ekki.
banner
banner
banner