Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 13. júlí 2011 15:00
Magnús Már Einarsson
Yfirlýsing frá Sigursteini: Ætlaði að koma á fullu til baka 11. júlí
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigursteinn Gíslason, fyrrverandi þjálfari Leiknis R., hefur sent frá sér yfirlýsingu. Sigursteinn var rekinn úr starfi á laugardag eftir að hafa stýrt Leiknismönnum síðan haustið 2008.

Sigursteinn hefur ekki stýrt Leiknismönnum frá því í fyrstu umferð í sumar þar sem hann hefur verið í veikindaleyfi. Á laugardag var honum sagt upp störfum en Zoran Miljkovic hefur tekið við þjálfun Leiknis.

Í yfirlýsingu Sigursteins kemur meðal annars fram að hann hafi ætlað að taka aftur við stjórnartaumunum hjá Leikni í vikunni áður en honum var sagt upp. Þá segist hann aldrei hafa verið beðinn um að stíga til hliðar sem þjálfari Leiknis.



Reykjavík 13.júlí 2011

Af gefnu tilefni er ég knúinn til að tjá mig opinberlega um samskipti mín við hluta stjórnarmanna Leiknis síðustu daga.
Eins og flestir vita greindist ég með krabbamein sunnudaginn 15.maí og tilkynnti ég stjórn Leiknis um ástand mitt samdægurs.

Stjórnin var fljót til og réð Garðar Gunnar til að taka við starfi mínu tímbundið, sem þjálfari meistaraflokks Leiknis á meðan ég væri frá vegna veikinda minna.
Fljótlega eftir greiningu var ákveðið að ég færi í aðgerð þar sem fjarlægt yrði annað nýrað úr mér, sú aðgerð var gerð 25. maí. Læknar sögðu að ég yrði 4-6 vikur að jafna mig eftir hana og eftir hana tæki við lyfjagjöf.
Lyfjagjöfin er í töfluformi og er í 4 vikur í einu og svo tvær vikur í fríi frá lyfjum, svo aftur fjórar vikur og eftir það yrðu sennilega teknar myndir og staðan skoðuð.

Strax vikunni eftir að ég greinist er ég ásamt eiginkonu minni í Leiknisheimilinu ásamt nánast allri stjórn Leiknis og framkvæmdarstjóra. Þar segja þeir okkur það að Ég Sigursteinn Gíslason verði þjálfari liðsins alveg þar til ég ákveð annað sjálfur.

Gengi Leiknisliðsins hefur ekki verið eins og menn vonuðust til og stjórn Leiknis kallar mig á fund með sér 24.júní til að fara yfir stöðuna á liðinu. Á fundinum var ég spurður hvernig staðan á mér væri og ég sagði þeim þá að ég væri á degi 3 í lyfjagjöfinni og ég gæti ekki sagt til um það hvenær ég gæti komið 100% til baka, þar sem læknar voru búinir að segja mér að aukaverkanir af lyfjunum kæmu ekki fyrr en á annari og jafnvel þriðja og fjórða vikan gætu orðið erfiðastar.

Á þessum fundi sem stjórn Leiknis vísar til í sinni yfirlýsingu var ég ALDREI beðinn um að stíga til hliðar sem þjálfari liðsins. Eins og áður sagði þá sagðist ég ekki vita hvernig lyfin færu í mig og sagði að stjórnin yrði bara að gera það sem hún taldi rétt fyrir klúbbinn.

Aukaverkanir af lyfjunum voru þónokkarar í viku tvö (28/6-4/7) en eftir það hef ég verið verkjalaus og vegna þess hafði ég ákveðið að koma á fullu aftur í sem þjálfari Leiknis mánudaginn 11. Júlí.

Laugardaginn 9.júlí fæ ég hringingu frá formanni Leiknis fyrir hádegi og ég spurður hvort ég gæti hitt hann og gjaldkera félagsins í Leiknisheimilinu. Ég var staddur í Húsafelli með fjölskyldunni minni og sagðist ekki komast til að hitta þá fyrr en seinnipart sunnudags og var það ákveðið. Innan við klukkustund eftir þetta símtal hringir formaðurinn aftur og tilkynnir mér að stjórn Leiknis (þegar ég tala um stjórn Leiknis skal það koma fram að það er ekki öll stjórnin sem tekur þessa ákvörðun) hafi tekið þá ákvörðun að leita sér að framtíðarþjálfara og það sé ekki ég.

Ég mætti í Leiknisheimilið á sunnudeginum 10. Júlí kl: 16 og er þá stjórn Leiknis að tilkynna leikmönnum að búið sé að reka mig og Garðar Gunnar sem þjálfara liðsins og ráða Zoran til starfa (ekki til framtíðar heldur bara fram á haust). Ég tala svo við leikmennina og sagði þeim hvernig stjórnin stóð að uppsögn minni og þakkaði ég strákunum fyrir frábæran tíma saman í tæp þrjú ár. Svo óskaði ég þeim góðs gengis það sem eftir væri af mótinu.

Eftir fundinn með strákunum settist ég niður með stjórn Leiknis, framkvæmdarstjóra og Gunnari Einarssyni. Þar kom fram að þeir töldu að ég væri ekki tilbúinn til að taka við liðinu aftur og snúa gengi liðsins við vegna veikinda minna (enginn úr stjórn Leiknis spurði mig hvernig staðan á mínum veikindum væri frá því á fundinum í 24. Júní þar til að þeir ákváðu að reka mig 9.júlí.) Þannig að þeir álykta þetta miðað við stöðuna 15 dögum áður. Einnig kom fram á fundinum að stjórn Leiknis réð Zoran til starfa föstudaginn 8.júlí þ.e. daginn áður en þeir sögðu mér upp sem þjálfara liðsins.

Á fundinum lét ég stjórnina vita að ég myndi ekki gefa út sameiginlega yfirlýsingu með þeim þar sem þetta hafi verið einhliða þeirra ákvörðun að reka mig.
Leiknismenn senda síðan frá sér yfirýsingu á mánudaginn 11. júlí og segir þar orðrétt: „Á fundi með stjórn knattspyrnudeildar var Sigursteinn inntur eftir því hvort hann vildi stíga til hliðar og einbeita sér að veikindum sínum“

Til að fyrirbyggja allan misskilning þá skal rétt vera rétt og það er eftirfarandi.
Ég Sigursteinn hef ALDREI verið beðinn um að stíga til hliðar sem þjálfari Leiknis og þeir sem halda öðru fram eru einfaldlega að ljúga vísvitandi. Eftir að ég las yfirlýsingu frá Leikni á mánudag hringdi ég í stjórnarmann Leiknis og bað hann um að þeir myndu leiðrétta þessa yfirlýsingu samdægurs þar sem kæmi fram að ég hefði aldrei verið beðinn um að stíga til hliðar annars yrði ég sjáfur senda yfirlýsingu sem ég hér með hef gert.

Varðandi Gunnar Einarsson sem hefur verið minn aðstoðarmaður og leikmaður í rúm 2 ár þá ákvað hann að hætta hjá Leikni um leið og mér var sagt upp enda leit Gunnar á okkur saman sem teymi sem brotið hafi verið upp með brottrekstri mínum. Ég reyndi að telja Gunnar af því að hætta sem leikmaður Leiknis því liðið þyrfti á honum að halda. En hann tók sína eigin ákvörðun og hún stendur.

Að lokum kæru Leiknismenn vil ég þakka ykkur fyrir þann tíma sem ég hef verið með ykkur. Þessi tæp þrjú ár hafa gefið mér mikið og sé ég ekki eftir einni mínútu með ykkur enda frábær félagskapur og góður vinskapur sem ég hef myndað með svo mörgum ykkar. Takk fyrir allan stuðninginn frá ykkur á mínum þjálfaratíma hjá Leikni. Og það er mér og fjölskyldu minni mjög sárt að yfirgefa ykkur á þennan hátt eins og raun ber vitni. Og að þurfa að skrifa þessa yfirlýsingu og setja í fjölmiðla var ekki það sem ég vildi en stjórn Leiknis sá til þess að það var ekki umflúið þar sem þeir vildu ekki senda frá sér nýja yfirlýsingu og leiðrétta staðreyndarvillu sína.

Með þökk fyrir frábæran tíma
Sigursteinn Gíslason
banner
banner
banner