Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 29. mars 2012 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Boateng: Pele hetjan mín því hann er svartur
Kevin-Prince Boateng
Kevin-Prince Boateng
Mynd: Getty Images
Kevin-Prince Boateng, leikmaður AC Milan á Ítalíu segist alltaf hafa litið upp til brasilíska snillingsins Pele.

Boateng, sem er 25 ára gamall hefur verið lykilmaður með Milan á þessu tímabili, en hann kom frá Portsmouth sumarið 2010.

Leikmaðurinn segist byggja leik sinn á brasilísku leikmönnunum Rivaldo og Pele, en hann segir þann síðarnefnda hafa verið hetja í lífi hans frá því hann var ungur.

,,Mér líkaði vel við Rivaldo, því mér fannst ég vera með svipaðan leikstíl og hann," sagði Boateng við heimasíðu UEFA.

,,Ég hef notið þess að horfa á marga leikmenn, en Pele var alltaf hetjan mín því að hann er svartur og hann skoraði ótrúlega mörg mörk og náði miklum árangri," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner