Hermann Gunnarsson á leik með Val á Hlíðarenda fyrir tveimur árum síðan. Með honum á myndinni er Böðvar Bergsson.
Hermann Gunnarsson fyrrverandi landsliðsmaður Íslands og einn ástsælasti fjölmiðlamaður þjóðarinnar er látinn, 66 ára að aldri.
Hermann lést í dag en hann var staddur í sumarfríi á Tælandi. Hann starfaði undanfarin ár sem útvarpsmaður á Bylgjunni en hafði nýlega látið af störfum þar.
Hermann lést í dag en hann var staddur í sumarfríi á Tælandi. Hann starfaði undanfarin ár sem útvarpsmaður á Bylgjunni en hafði nýlega látið af störfum þar.
Hermann spilaði knattspyrnu hér á landi með Val mest megnis af sínum ferli frá árunum 1963-1976 ef undanskilin eru árin 1969 er hann lék með SC Eisenstadt í Austurríki og 1970 er hann lék með ÍBA á Akureyri og var einnig þjálfari liðsins.
Hann hóf reyndar ferilinn með Víkingi Reykjavík til 9 ára aldurs áður en hann skipti yfir í Val og skoraði eitt sumarið 62 mörk í 15 leikjum með yngri flokk.
Hann spilaði með íslenska landsliðinu frá 1967-1973, samtals 20 leiki og skoraði í þeim sex mörk. Eitt markanna skoraði hann í 14-2 leiknum fræga gegn Dönum.
Hermann var einnig landsliðsmaður í handbolta og eftir að íþróttaferlinum lauk varð hann íþróttafréttamaður áður en hann byrjaði með sjónvarpsþáttinn vinsæla ,,Á tali með Hemma Gunn," sem sló öll áhorfsmet á sínum tíma.
Fótbolti.net leitaði oft til Hermanns og fékk hann til að spá í leiki og veita hin ýmsu viðtöl. Hann var alltaf boðinn og búinn enda frábær karakter.
Fótbolta.net sendir fjölskyldu hans og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur.


