Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 20. janúar 2014 15:00
Magnús Már Einarsson
Renee Troost til Rijnsburgse Boys (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hollenski varnarmaðurinn Renee Troost hefur gengið til liðs við Rijnsburgse Boys í heimalandinu eftir að hafa leikið með Breiðabliki undanfarin tvö tímabil.

Rijnsburgse Boys er í 11. sæti af 16 liðum í hollensku C-deildinni en Troost skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.

Troost kom til Blika fyrir tímabilið 2012 og spilaði þá alla leiki liðsins nema einn í Pepsi-deildinni.

Í sumar skoraði Troost síðan eitt mark í 18 leikjum í Pepsi-deildinni með Blikum.

Valur sýndi áhuga á að fá Troost í sínar raðir í haust en nú er ljóst að hann er ekki væntanlegur í Pepsi-deildina í sumar.
Athugasemdir
banner
banner