Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. júní 2014 15:48
Magnús Már Einarsson
Guðjón Orri má fara frá ÍBV í júlí
Guðjón Orri Sigurjónsson.
Guðjón Orri Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Orri Sigurjónsson, markvörður ÍBV, hefur fengið leyfi til að róa á önnur mið þegar félagaskiptaglugginn opnar þann 15. júlí.

Hinn 22 ára gamli Guðjón Orri má fara frá ÍBV á láni en hann hefur einungis spilað einn leik á þessu tímabili á meðan Abel Dhaira hefur verið í markinu.

,,Ég er á þeim aldri að ég þarf að spila leiki til að bæta mig enn frekar sem markmaður og því fæ ég að ræða við aðra klúbba," sagði Guðjón Orri við Fótbolta.net í dag.

Guðjón lék nokkra leiki með ÍBV í fyrra þegar David James var fjaverandi.

Á dögunum var Guðjón valinn í U21 árs landsliðshópinn sem mætti Svíum í vináttuleik.
Athugasemdir
banner
banner