Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. janúar 2015 18:50
Magnús Már Einarsson
Finnur Orri í Lilleström (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Finnur Orri Margeirsson gekk í dag til liðs við norska félagið Lilleström.

Finnur Orri skrifaði undir eins árs samning hjá Lilleström en Rúnar Kristinsson tók við þjálfun liðsins í haust og Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðstoðarþjálfari þar.

Síðastliðið haust gekk Finnur Orri til liðs við FH eftir að hafa leikið með uppeldisfélagi sínu Breiðablik alla sína tíð.

Finnur náði þó ekki að leika mótsleik með FH því hann var með klásúlu um að geta farið í erlent félag.

Þegar Lilleström sýndi áhuga ákvað Finnur að nýta sér klásúluna og ganga í raðir norska félagsins.
Athugasemdir
banner
banner