fim 05. febrúar 2015 20:39
Daníel Freyr Jónsson
Reykjavíkurmótið: Sigurður Egill kom Val í úrslit
Sigurður Egill skoraði eina mark leiksins.
Sigurður Egill skoraði eina mark leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fjölnir 0 - 1 Valur
0-1 Sigurður Egill Lárusson ('33)

Valur er komið í úrslit Reykjavíkurmótsins eftir að hafa lagt Fjölnir að velli í miklum baráttuleik í Egilshöllinni í kvöld.

Eina mark leiksins skoraði Sigurður Egill Lárusson á 33. mínútu

Fjölnismenn voru talsvert meira með boltann í síðari hálfleik en Valsmenn vörðust vel. Þeir guldklæddu komust næst því að jafna á 55. mínútu þegar Þórður Steinar Bjargaði á línu frá Ægi Jarli .

Guðmundur Þór Júlíusson bjargaði einnig á línu fyrir Fjölnismenn skömmu síðar.

Valsmenn mæta því til leiks í úrslitaleikinn á mánudagskvöld. Það ræðst síðar í kvöld hvort það verður KR eða Leiknir sem mætir þeim.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner