þri 21. apríl 2015 13:33
Magnús Már Einarsson
Tonci Radovinkovic í Fylki (Staðfest)
Mynd: dalmacijanews.com
Fylkir hefur fengið króatíska varnarmanninn Tonci Radovinkovic í sínar raðir.

Tonci hefur æft með Fylki undanfarnar vikur og hann hefur nú fengið leikheimild með liðinu.

Hinn 27 ára gamli Tonci spilaði síðast í heimalandi sínu.

,,Í ljósi þess að Agnar Bragi (Magnússon) þurfti að leggja skóna á hilluna þá vantaði meiri breidd inn á þetta svæði. Hann kemur til með að fylla það skarð," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis í útvarpsþætti Fótbolta.net á dögunum.

Fylkismenn mæta Breiðabliki í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar þann 3. maí næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner