þri 07. júlí 2015 12:20
Magnús Már Einarsson
KA fær Val í heimsókn - KR og ÍBV mætast enn á ný
KR og ÍBV mætast.
KR og ÍBV mætast.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú rétt í þessu var dregið í undanúrslit í Borgunarbikar karla. KA úr 1. deild fær Val í heimsókn.

KR og ÍBV mætast síðan í Vesturbænum en þessi lið eru nú að mætast fjórða árið í röð í bikarnum. KR hefur alltaf haft betur hingað til en liðið vann ÍBV í undanúrslitunum í fyrra.

Undanúrslit karla:
KR - ÍBV
KA - Valur

Leikirnir eru skráðir miðvikudaginn 29. júlí og fimmtudaginn 30. júlí en þeir gætu farið fram um Verslunarmannahelgina ef KR nær langt í Evrópudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner