Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 23. febrúar 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Sverrir Mar í Fjarðabyggð (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Fjarðabyggð hefur fengið varnarmanninn Sverrir Mar Smárason í sínar raðir frá Kára.

Sverrir Mar er uppalinn hjá ÍA en hann hjálpaði Kára upp úr 4. deildinni árið 2014 og var fastamaður hjá liðinu í 3. deildinni í fyrra.

Sverrir er tvítugur en hann er bróðir Arnórs Smárasonar leikmanns Hammarby.

Hann er annar leikmaðurinn sem fær leikheimild með Fjarðabyggð í dag en í morgun kom portúgalski framherjinn José Alberto Djaló Embaló til félagsins.

Komnir:
Haraldur Þór Guðmundsson frá Leikni F.
José Alberto Djaló Embaló frá Rapid Búkarest
Marteinn Þór Pálmason frá Leikni F.
Sverrir Mar Smárason Kári
Sævar Örn Harðarson frá Elliða
Víglundur Páll Einarsson frá Einherja

Farnir:
Bjarni Mark Antonsson í KA (Var á láni)
Brynjar Jónasson í Þrótt
Carl Oscar Anderson
Emil Stefánsson í FH (Var á láni)
Elvar Ingi Vignisson í ÍBV
Hafþór Þrastarson í Fram
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson í Leikni R. (Var á láni frá FH)
Kile Kennedy til Ástralíu
Nik Chamberlain í Aftureldingu
Viðar Þór Sigurðsson í KR (Var á láni)
Viktor Örn Guðmundsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner