fim 03. mars 2016 11:58
Magnús Már Einarsson
Gonzalo Balbi ekki áfram hjá KR
Gonzalo Balbi.
Gonzalo Balbi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gonzalo Balbi er farinn frá KR og mun ekki leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Balbi hefur ekki verið með KR í vetur en hann er fluttur aftur til Spánar.

„Hann ákvað að snúa sér að öðrum störfum," sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari KR við Fótbolta.net í dag.

Balbi hefur spilað undanfarin tvö tímabil með KR. Í fyrra spilaði hann fimmtán leiki í Pepsi-deildinni, aðallega sem hægri bakvörður.

KR-ingar voru að koma heim úr æfingaferð í Bandaríkjunum en þar voru þeir með danska varnarmanninn Morten Beck á reynslu.

Ekki er ennþá búið að taka ákvörðun um það hvort samið verði við Beck eða ekki.
Athugasemdir
banner
banner
banner