Við hér á Fótbolta.net stóðum fyrir kosningu á besta fótboltamanni heims í nóvembermánuði. Við höfum nú í desember verið að telja niður til jóla með því að birta þá 24 efstu, einn á dag.
3. Pavel Nedved
Pavel Nedved fæddist í bænum Cheb sem staðsettur er í nágrenni Prag í Tékklandi. Hann kom í heiminn 30.ágúst árið 1972. Faðir hans heitir Vaclav og starfar sem verkamaður, hann eyddi miklum tíma í að æfa skot með syni sínum. Móðir Pavel heitir Ana Nedved. Foreldrar hans voru mjög stolt af ljóshærða stráknum sínum sem ólst upp sem mjög sjálfstæður persónuleiki með mikla trú á eigin verðleikum.Nedved er álitinn guð í heimabæ sínum Cheb og er elskaður og dáður af fyrrum félagi sínu, Sparta Prag. Hann hóf fótboltaferilinn með Dukla Prag og fór þaðan til Spörtu í Prag. Þaðan fór hann í ítölsku Seríu-A deildina en fyrir tímabilið 1996/97 gekk hann til liðs við Lazio. Framan af ferlinum lék hann sem sóknarmaður en færðist alltaf nær miðvæðinu og í dag leikur hann best í hjarta miðjunnar.
Þegar Evrópumeistaramótið fór fram í Englandi árið 1997 var slegist um Nedved og fóru Lazio og PSV Eindhoven þar fremst í flokki. Eins og áður sagði sigraði Lazio þann slag. Hans fyrsti leikur fyrir félagið var gegn Bologna þann 7.september 1996 en það var reyndar Bologna sem sigraði í þeim leik 1-0.
Nedved skoraði mikið fyrir Lazio, ellefu mörk á fyrsta tímabili sínu. Á hans öðru tímabili kom fyrsti titill hans hjá félaginu þegar Lazio varð ítalskur bikarmeistari og sigraði síðan Ofurbikarinn þar í landi. Þriðja tímabil hans var ekki eins og best verður á kosið en í maí 1999 varð Lazio Evrópumeistari bikarhafa en í úrslitaleiknum skoraði Nedved.
Því takmarki náði Nedved ekki og í júlí 2001 var hann seldur til Juventus. Hann smellpassaði inn í lið Juve og vann tvo ítalska meistaratitla á tveimur árum með liðinu. Hann var besti leikmaður liðsins tímabilið 2002/03 þegar það komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hann gat þó ekki leikið með í sjálfum úrslitaleiknum þar sem hann tók út leikbann, það voru gríðarleg vonbrigði en AC Milan sigraði í leiknum.
Nedved hleypur í 90 mínútur og er jafnvígur á báðar lappir, hann var árið 2003 valinn knattspyrnumaður ársins í fjórða sinn í Tékklandi. Stuttu síðar þá fékk hann gullknöttinn 2003 sem besti knattspyrnumaður Evrópu sem er einn af hápunktunum á ferli hans. Þá var hann að sjálfsögðu valinn bestur í ítalska boltanum.
Tékkland komst í undanúrslit í Evrópukeppni landsliða sumarið 2004 þar sem Nedved var besti maður leiksins gegn Hollendingum í riðlakeppninni. Tékkland vann leikinn 3-2 mjög eftirminnilega. Eftir mótið tilkynnti hann að hann væri hættur að leika með landsliðinu sem var mikið áfall fyrir Tékkland, þá hefur hann sagst íhuga að hætta fótboltaiðkun alfarið 2006.
- Honum finnst best að skjóta með vinstri.
- Umboðsmaður hans heitir Raiola.
- Þegar hann var yngri lærði hann að vera endurskoðandi.
- Hann kynntist Ivönu eiginkonu sinni þegar hann var 16 ára og þau giftust fimm árum síðar.
- Hann á tvö börn, dóttir sem heitir Ivana og son sem heitir Pavel eins og hann.
- Hann á eldri systur.
- Hann safnar víni og borðar mikinn mozzarella.
- Fyrirmyndin hans er hnefaleikakappinn Mike Tyson.
- Hann spilar oft tennis.
- Uppáhaldsmyndin hans er Braveheart.
- Uppáhalds leikarar hans eru Julia Roberts og Mel Gibson.
Sjá einnig:
Nr. 5: Zinedine Zidane (Real Madrid)
Nr. 6: Rio Ferdinand (Manchester United)
Nr. 7: Steven Gerrard (Liverpool)
Nr. 8: Adriano (Inter Milan)
Nr. 9: Ruud van Nistelrooy (Manchester United)
Nr. 10: Gianluigi Buffon (Juventus)
Nr. 11: Eiður Smári Guðjohnsen (Chelsea)
Nr. 12: Ronaldo (Real Madrid)
Nr. 13: Arjen Robben (Chelsea)
Nr. 14: Sol Campbell (Arsenal)
Nr. 15: Patrick Vieira (Arsenal)
Nr. 16: Alessandro Nesta (AC Milan)
Nr. 17: Wayne Rooney (Manchester United)
Nr. 18: Paolo Maldini (AC Milan)
Nr. 19: David Beckham (Real Madrid)
Nr. 20: John Terry (Chelsea)
Nr. 21: Cristiano Ronaldo (Manchester United)
Nr. 22: Edgar Davids (Inter Milan)
Nr. 23: Kaká (AC Milan)
Nr. 24: Michael Owen (Real Madrid)



