Við hér á Fótbolta.net stóðum fyrir kosningu á besta fótboltamanni heims í nóvembermánuði. Við höfum nú í desember verið að telja niður til jóla með því að birta þá 24 efstu, einn á dag.
2. Thierry Henry
Thierry Henry fæddist 17.ágúst árið 1977 í Les Ulis, litlum bæ nálægt París. Þetta úthverfi bauð ekki upp á bestu uppeldisaðstæður en foreldrar hans Antoine og Marylese hjálpuðu honum mikið. Antoine faðir hans lét hann æfa fótbolta og frjálsar íþróttir og var hann löngum stundum úti í fótbolta. Marylese móðir hans hafði hinsvegar áhyggjur af því að Henry væri of mikið út í fótbolta og sinnti náminu ekki vel. Henry hlustaði á báða foreldra sína og varð frábær námsmaður sem og frábær fótboltamaður.Það kom fljótlega í ljós að Henry var betri en flestir jafnaldrar sínir og á unglingsárum fór hann að vekja athygli útsendara sem að sáu hann spila með unglingaliði Les Ulis og Palaiseau sem að var nágrannalið. Thierry Pret útsendari hjá Viry-Chatillon hreifst fyrstur útsendara af Henry og þegar að Henry var þrettán ára var honum boðið að koma til Viry-Chatillon.
Antoine faðir hans samþykkti það og Henry fór að leika með U-15 ára liði Viry-Chatillon. EKki löngu síðar skyldu foreldrar Henry og móðir hans vildi láta hann í Alexander Fleming skólann. Henry stundaði nám þar um stund en hélt áfram að spila með Viry-Chatillon og skoraði hann 77 mörk í 26 leikjum fyrir liðið.
Rétt áður en að Henry var fjórtán ára var honum boðið ásamt 25 öðrum drengjum að koma og dvelja í Clairefontaine Akademíu franska knattspyrnusambandsins um 30 mílum frá París. Henry var í skólanum um nokkra stund og meðal þeirra sem að voru þar líka voru Louis Saha (Manchester United), Nicolas Anelka (Manchester City) og William Gallas (Chelsea).
Eftir tveggja ára dvöl í skólanum fannst þjálfurunum þar að Henry væri ekki alveg nógu góður til að verða framtíðarleikmaður með franska landsliðinu. Þeim fannst hraðinn og leikskilningur Henry vera góður en sendingar, boltameðferð og það að nýta færin var eitthvað sem að þeim fannst ekki nógu gott hjá þessum sóknarmanni.
Arsene Wenger sem að þá var þjálfari Monaco sá hinsvegar hæfileikana hjá Henry og hann samdi við hann þegar að Henry var sextán ára gamall. Í ágúst árið 1994 lék Henry sinn fyrsta leik með Monaco sem að tapaði 2-0 gegn Nice. Henry skoraði þrjú mörk í átta leikjum þetta tímabil. Tímabilið 1995-1996 var ekki jafn gott en þá náði Henry aðeins að skora þrjú mörk í átján leikjum.
Kantmaður eða framherji?
Wenger gekk illa að finna stöðu á vellinum fyrir Henry. Flestir töldu að hann hefði hraðann til að vera á kantinum en Wenger hélt því fram að einn daginn yrði hann einn besti framherji í heiminum þrátt fyrir að hann hefði ekki sömu hæfileikana í að skora og Pele, Maradona og Klinsmann. Árið 1996 var Henry valinn besti ungi leikmaðurinn í Frakklandi og hann vakti mikla athygli á EM U-18 ára landsliða.
Samningur hans var að vera útruninn hjá Monaco og mörg stórlið vildu semja við Henry. Spænska stórliðið Real Madrid náði að gera samning við Henry en Monaco kvartaði sáran og sagðist hafa gert samning við skráðan umboðsmann Henry að leikmaðurinn yrði áfram hjá Monaco. Fifa ákvað að sekta Real Madrid og Henry og í janúar árið 1997 skrifaði hann undir nýjan samning við Monaco.
Henry skoraði níu mörk í 36 leikjum með Monaco á sínu þriðja leiktímabili með liðinu. Árið 1997 var HM U-20 ára landsliða í Malasíu og Henry ætlaði að sanna sig þar og þá sérstaklega fyrir þjálfara A-landsliðs Frakka en á þessum tímapunkti var eitt ár í að HM yrði haldið í Frakklandi. Henry lék vel en Frakkar duttu úr leik í 8-liða úrslitum þar sem liðið tapaði 2-1 fyrir Úrúgvæ. Síðar þetta ár lék Henry sinn fyrsta A-landsleik þar sem að Frakkar unnu Suður-Afríku 2-1.
Stórliðin sína áhuga:
Tímabilið 1997/1998 skoraði Henry aðeins fjögur mörk í 30 leikjum í frönsku í deildinni en í Meistaradeildinni skoraði hann sjö mörk og leiddi lið Monaco í undanúrslit. Þarna var Henry mikið í umræðunni og Barcelona, Arsenal, Real Madrid og Juventus vildu öll fá hann en David Trezeguet félagi hans var hinsvegar meira í umræðunni og var hann sagður vera hinn næsti Gabriel Batistuta.
Aime Jacquet valdi Henry í landsliðshópinn fyrir HM en margir voru á undan Henry í goggunarröðinni. Hann fékk hinsvegar tækifæri gegn Suður-Afríku og hann nýtti það vel með því að skora laglegt mark. Zinedine Zidane fékk leikbann og Christophe Dugarry meiddist svo að Henry fékk aftur tækifæri sem að hann nýtti vel. Hann skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Frakka á Saudi-Arabíu.
Vonbrigði á Ítalíu:
Eftir HM var Henry eftirsóttur af stórliðunum líkt og fyrr. Henry vildi fara til Arsenal þar sem að Arsene Wenger var orðinn stjóri eftir stutt stopp sem þjálfari í Japan. Juventus bauð hinsvegar best og Henry gekk til liðs við ítalska liðið. Þar var hann látinn leika á kantinum og hann náði sér aldrei á strik.
,,Á Ítalíu fékk ég ekki ánægju af því að spila. Ég þurfti að sinna mikilli varnarvinnu í leikjum og sumir leikir voru hundleiðinlegir. Leikir þar sem að ekkert var í gangi, enginn sóknarleikur. Hinsvegar finnst mér frábært að vera hjá Arsenal, það er félag sem höfðar til mín og ég er mjög á nægður með að ganga vel hér." Sagði Henry um dvöl sína á Ítalíu.
Eftir aðeins þrjú mörk í sextán leikjum með Juve gekk Henry til liðs við Arsenal fyrir tíu milljónir punda. Eftir brösulega byrjun þar sem að Henry skoraði aðeins eitt mark í átta leikjum þá fann hann fljótlega markaskónna og skoraði hann 17 mörk í 31 leik í úrvalsdeildinni.
Henry var valinn í franska hópinn fyrir EM 2000 en þá hafði hann ekki leikið með franska landsliðinu í um eitt og hálft ár þar sem að honum gekk svo illa hjá Juventus. Roger Lemerre sem var tekinn við franska landsliðinu hafði Henry á kantinum og Trezeguet og Anelka frammi. Það gekk vel í riðlakeppninni og Henry skoraði og spilaði vel. Í 8-liða úrslitum gegn Spánverjum gekk þetta kerfi ekki eins vel og Henry var settur fram. Eftir að hafa skorað fyrra markið í 2-1 sigri á Portúgölum í undanúrslitum var Henry kominn ásamt franska liðinu í úrslitaleik á stórmóti annað skiptið í röð.
Þar lagði liðið Ítali 2-1 eftir framlengingu og flestir voru á því að Henry og Zidane hefðu verið bestu menn Frakka á EM.
Barcelona og Real Madrid með áhuga:
Eftir EM vildu spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid fá Henry en þeim tókst ekki að krækja í kappann. Tímabilið 2000-2001 var vonbrigði fyrir Arsenal en Henry skoraði þó 22 mörk í öllum keppnum, þar af sautján í ensku úrvalsdeildinni. Næsta tímabil á eftir varð Henry markakóngur með 24 mörk þegar að Arsenal sigraði ensku úrvalsdeildina.
Henry gekk ekki aðeins vel á vellinum því að hann skrifaði einnig undir stóran samning við Nike árið 2002. Þá lét hann byggja stórt hús fyrir sig og var það dýrasta hús sem að fótboltamaður hafði látið byggja í Englandi á sínum tíma.
Með miklar vonir eftir síðustu tvö stórmót héldu Frakkar á HM 2002. Þar fór hinsvegar allt úrskeiðis nánast hjá liðinu og það skoraði ekki mark og þurfti að fara heim eftir riðlakeppnina.
Henry byrjaði tímabilið 2002-2003 að fagna mörkum með því að setja treyjuna fyrir ofan hausinn og sýna stuttermabol sem að á voru skrifuð skilaboð til fjölskyldu og vina. Fljótlega fóru fleiri og fleiri að nota þetta fagn og ekki leið að löngu þar til að Fifa bannaði þetta.
Henry lék áfram frábærlega með Arsenal og einn besti leikur hans var þegar að hann skoraði þrennu í 3-1 útisigri á Roma í Meistaradeildinni í nóvemer 2002. Hann skoraði 24 mörk í ensku úrvalsdeildinni en Ruud van Nistelrooy framherji Manchester United skoraði einu meira og varð markakóngur. Manchester United sigraði einnig deildina en liðið endaði fimm stigum á undan Arsenal. Henry og félagar náðu hinsvegar að vinna Fa-bikarinn með 1-0 sigri á Southampton í úrslitaleik.
Henry skoraði sitt hundraðasta mark fyrir Arsenal í janúar 2003 en þá hafði hann leikið 180 leiki fyrir félagið. Tímabilið 2003-2004 lék Henry frábærlega og Arsenal sigraði deildina án þess að bíða ósigur. Henry skoraði og skoraði en í desember 2003 varð hann í öðru sæti í kjöri á knattspyrnumanni ársins árið 2003.
Eins og fyrr segir sigraði Arsenal ensku deildina en liðið náði ekki að sigra Meistaradeildina og enska bikarinn þar sem að Chelsea og Manchester United slógu liðið út. Henry var hinsvegar markahæstur í deildinni með 30 mörk, 8 mörkum meira en Alan Shearer sem að varð annar. Henry var einnig valinn besti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni í annað skiptið á ferlinum.
Henry olli nokkrum vonbrigðum á EM þar sem að Frakkar duttu út í 8-liða úrslitum þegar að Evrópumeistarar Grikkja sigruðu þá 1-0. Henry er sem stendur markahæstur í ensku úrvalsdeildinni með fimmtán mörk og á þriðjudaginn varð hann annar í kjöri á knattspyrnumanni ársins 2004. Henry var valinn annar besti leikmaður í heimi af mati lesenda Fótbolti.net í desember 2004. Þessi frábæri leikmaður er ekkert að slaka á og ekki er ólíklegt að hann verði síðar valinn besti fótboltamaður í heimi.
- Uppáhalds íþróttamaður Henry í Bandaríkjunum er Allen Iverson körfuboltamaður með Philadelphia 76ers.
- Henry hlustar á rapp fyrir leiki. Meðal uppáhalds tónlistamanna og hljómsveita hans má nefna Dr. Dre, Snoop Dog, Xzibit og the Wu-Tang Klan.
- Henry er giftur bresku fyrirsætunni og leikkonunni Nicole Merry.
- Tvær uppáhaldsbíómyndir Henry eru “The Usual Suspects” og “Antwone Fisher.”
- Henry elskar að horfa á gamla fótboltaleiki á ESPN Classic.
Sjá einnig:
Nr. 3: Pavel Nedved (Juventus)
Nr. 4: Andriy Shevchenko (AC Milan)
Nr. 5: Zinedine Zidane (Real Madrid)
Nr. 6: Rio Ferdinand (Manchester United)
Nr. 7: Steven Gerrard (Liverpool)
Nr. 8: Adriano (Inter Milan)
Nr. 9: Ruud van Nistelrooy (Manchester United)
Nr. 10: Gianluigi Buffon (Juventus)
Nr. 11: Eiður Smári Guðjohnsen (Chelsea)
Nr. 12: Ronaldo (Real Madrid)
Nr. 13: Arjen Robben (Chelsea)
Nr. 14: Sol Campbell (Arsenal)
Nr. 15: Patrick Vieira (Arsenal)
Nr. 16: Alessandro Nesta (AC Milan)
Nr. 17: Wayne Rooney (Manchester United)
Nr. 18: Paolo Maldini (AC Milan)
Nr. 19: David Beckham (Real Madrid)
Nr. 20: John Terry (Chelsea)
Nr. 21: Cristiano Ronaldo (Manchester United)
Nr. 22: Edgar Davids (Inter Milan)
Nr. 23: Kaká (AC Milan)
Nr. 24: Michael Owen (Real Madrid)



