Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 24. janúar 2005 07:23
Hafliði Breiðfjörð
Pennant tekinn fullur á bílnum sínum í gær
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Jermaine Pennant miðvallarleikmaður Arsenal var handtekinn af lögreglu í gærmorgun eftir að hafa ekið á ljósastaur en hann var grunaður um ölvun við akstur. Pennant sem er 21 árs gamall gaf öndunarsýni er hann var stöðvaður klukkan 06:20 í gærmorgun og var í kjölfarið færður á lögreglustöð þar sem hann var ákærður.

Hann á að svara fyrir dómara 1. ferbúar næstkomandi og var sleppt gegn tryggingu.

Talsmaður lögreglunnar sagði: ,,Lögreglan var kölluð á Park Street í Aylesbury klukkan 06:20 þar sem tilkynnt var um að bifreið hafi ekið á ljósastaur. Lögreglumenn komu á staðinn og handtóku ökumann Mercedes bifreiðar. Hann var tekinn á lögreglustöðina í Aylesbury þar sem hann var síðar ákærður fyrir ölvun við akstur."

Talið er að bifreiðin sem Pennant ók á ljósastaurinn sé í eigu Ashley Cole félaga hans í Arsenal.

Pennant var yngsti leikmaður Arsenal frá upphafi en hann var 16 ára og 319 daga gamall er hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í Worthington Cup gegn Middlesbrough 30. nóvember 1999. Cesc Fabregas bætti svo um betur en hann var 16 ára og 177 daga gamall þegar hann lék gegn Rotherham. Pennant hafði fyrr um árið verið keyptur frá Notts County á 2 milljónir punda. Pennant var á láni hjá Leeds á síðustu leiktíð.
Slapp
banner
banner
banner