Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 12. ágúst 2017 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Xavi: Seri er með Barcelona DNA
Mynd: Getty Images
Xavi, sem er goðsögn hjá Barcelona, segist hafa verið orðlaus þegar hann sá Jean Michel Seri spila í fyrsta sinn.

Seri hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með Nice.

Xavi, sem spilaði lengi með Barcelona, segist hafa byrjað að fylgjast með Seri þegar hann heyrði að hann væri kallaður "afríski Xavi".

„Þegar mér var sagt að leikmaður Nice væri kallaður hinn ‘afríski Xavi‘ þá byrjaði ég að fylgjast vel með honum," sagði Xavi í viðtali við Eurosport. „Ég horfði á leiki og fullt af myndböndum. Ég varð orðlaus. Ég er ekki vanur því að sjá leikmann með svona mikla hæfileika á miðjunni. Hann hefur allt sem fótboltamaður þarf að hafa."

Seri hefur verið orðaður við Barcelona og Xavi er spenntur að sjá hvað mun gerast. Hann segir að Seri sé með Barcelona DNA.

„Hann yrði mjög góður fyrir Barca! Seri er frábær. Hann er með það sem við köllum ‘Barcelona DNA‘."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner