Antonio Conte, stjóri Chelsea, hrósaði varnarmanninum Cesar Azpilicueta í hástert eftir 6-0 sigur liðsins á Qarabag í Meistaradeildinni í gær.
Azpilicueta skoraði þriðja markið í stórsigrinum.
„Á síðasta tímabili var Azpi einn af mikilvægustu leikmönnunum fyrir okkur," sagði Conte eftir leik.
„Í stöðu sinni sem varnarmaður er hann einn besti leikmaður í heimi. Hann er mjög góður með og án boltans."

„Hann er stórkostlegur náungi. Hann er alltaf jákvæður og hann vinnur frábærlega á æfingum. Hann er draumur þjálfarans."
Athugasemdir