Margir Íslendingar eru farnir að horfa til þess að taka sumarfríið í Rússlandi næsta sumar og sjá íslenska landsliðið spila á HM.
KSÍ hefur fengið fjölda fyrirspurna um miða á HM og á vef sambandsins má nú sjá tilkynningu um stöðu mála.
Þar kemur fram að aðalhluti miðasölu til stuðningsmanna Íslands fari fram 5.desember-31. janúar.

Yfirlýsing frá KSÍ
Mikið hefur verið spurt um miða á HM í Rússlandi undanfarna daga. Starfsmenn KSÍ áttu fund með miðasöludeild FIFA í morgun og er nú unnið úr þeim upplýsingum sem fengust á þeim fundi.
Aðalhluti miðasölu til stuðningsmanna Íslands mun fara fram á miðasöluvef FIFA og hefst sú miðasala 5. desember og mun standa til 31. janúar.
Nánari upplýsingar um fjölda miða, miðaverð og kaupferlið eru í vinnslu og verða birtar í heild á næstu vikum.
Athugasemdir