Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 13. október 2017 09:00
Magnús Már Einarsson
Rose til Man Utd og Sanchez til Man City?
Powerade
Fer Sanchez til City?
Fer Sanchez til City?
Mynd: Getty Images
Það er föstudagur og ensku slúðurblöðin hafa skilað slúðri dagsins. Njótið!



Jose Mourinho, stjóri Manchester United, vill kaupa Danny Rose vinstri bakvörð Tottenham (27). Hann gæti kostað 50 milljónir punda. (Sun)

Manchester City ætlar að reyna að fá Alexis Sanchez (28) frá Arsenal í janúar. Sanchez verður samningslaus næsta sumar og City gæti krækt í hann á 20 milljónir punda. (Daily Mirror)

Michael O'Neill, landsliðsþjálfari Norður-Íra, gæti tekið við skoska landsliðinu af Gordon Strachan sem hætti í gær. (Guardian)

David Moyes hefur áhuga á að taka við Skotum. (Sun)

Njósnarar frá Chelsea ætla að horfa á Richmond Boakye (24) framherja Rauðu Stjörnunnar í leik gegn Arsenal í Evrópudeildinni í næstu viku. (Daily Mail)

Liverpool og Arsenal ætla bæði að reyna að fá Thomas Lemar (21) frá Mónakó næsta sumar. (Daily Mirror)

Lionel Messi gæti fengið 80 milljónir punda við undirskrift ef hann gerir nýjan samning við Barcelona. (Daily Mail)

Chelsea er að íhuga að lána belgíska miðjumanninn Charly Musonda (20) í janúar. (Evening Standard)

WBA gæti keypt miðjumanninn Grzegorz Krychowiak (27) sem er í láni frá PSG. (Talksport)

Leicester gæti krækt í Bacary Sagna (34) fyrrum bakvörð Manchester City og Arsenal en hann er án félags. (Leicester Mercury)

Sunderland gæti selt Lamine Kone (28), Jack Rodwell (26) og Didier Ndong (23) ef eigandinn Ellis Short nær ekki að selja félagið. (Northern Echo)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner