Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vonast til að Roberto FIrmino og Philippe Coutinho verði ferskir í stórleiknum gegn Manchester United á morgun.
Leikmennirnir spiluðu með brasilíska landsliðinu aðfaranótt miðvikudags áður en þeir fóru í einkaflugvél til Liverpool.
„Þeir fóru báðir í langt flug en ég get ímyndað mér að það hafi verið þægilegt miðað við verðmiðann sem ég sá á fluginu," sagði Klopp léttur í bragði á fréttamannafundi í dag.
Coutinho og Firmino fá ennþá meiri ábyrgð en vanalega á morgun þar sem Saido Mane er fjarri góðu gamni

„Við getum spilað án hans þó að við hefðum elskað það að hafa hann í byrjunarliðinu. Þannig er það," sagði Klopp.
Athugasemdir