Eddie Nketiah, leggðu þetta nafn á minnið.
Nketiah þykir mjög efnilegur, en hann hefur verið að spila gríðarlega vel með unglingaliðum og varaliði Arsenal.
Nketiah þykir mjög efnilegur, en hann hefur verið að spila gríðarlega vel með unglingaliðum og varaliði Arsenal.
Í kvöld gaf Arsene Wenger, stjóri Arsenal, honum sénsinn gegn Norwich í deildabikarnum.
Þegar Nketiah kom inn á var staðan 1-0 fyrir Norwich, en hann jafnaði metin á 85. mínútu. Leikurinn fór í framlengingu og þar skoraði strákurinn aftur, á 96. mínútu.
Þar við sat, lokatölur 2-1 fyrir Arsenal og hinn 18 ára gamli Nketiah bjargvættur, hetjan og allt þar á milli.
Eftir leikinn ákvað einn hugmyndaríkur stuðningsmaður Arsenal að breytta Wikipedia-síðu hans.
Síðunni var breytt þannig að Nketiah var lýst sem besta fótboltamanni allra tíma. Þetta má sjá á myndinni til hliðar.
Athugasemdir