Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 14. nóvember 2017 18:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svekkjandi jafntefli niðurstaðan gegn Katar
Icelandair
Jafntefli gegn Katar.
Jafntefli gegn Katar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn fagnar marki sínu.
Viðar Örn fagnar marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katar 1 - 1 Ísland
0-1 Viðar Örn Kjartansson ('26)
1-1 Mohammed Muntari ('91)
Lestu nánar um leikinn

Íslandi gerði svekkjandi jafntefli gegn Katar í vináttulandsleik sem fram fór í Doha í dag.

Fyrri hálfleikurinn var jafn framan af, en á 26. mínútu komst Ísland yfir. Viðar Örn Kjartansson skoraði þá eftir að boltinn barst til hans inn í teignum.

Viðar kláraði færi sitt afar vel, en hann var aðeins að skora sitt annað landsliðsmark í 16 landsleikjum. Hann fagnaði markinu með því að „sussa".

Ísland leiddi 1-0 í hálfleik þrátt fyrir nokkuð þunga pressu frá liði Katar undir lok hálfleiksins.

Ísland breytti í þriggja manna vörn í hálfleik og var uppleggið að vera aftarlega í seinni hálfleiknum. Katar var meira með boltann án þess þó að skapa sér mikið af hættulegum færum.

Þeim tókst þó að skapa sér eitt slíkt á 91. mínútu. Þá kom löng sending inn á teiginn og Mohamed Muntari fékk nægan tíma til að athafna sig. Hann tók boltann niður og skoraði.

Lokatölur 1-1 í Katar í dag, en Ísland fer heim með tap gegn Tékklandi og þetta jafntefli á bakinu. Ekki bestu úrslit í heimi, en íslenska landsliðið hefur verið þekkt fyrir það, ef svo má segja, að ganga ekki vel í vináttulandsleikjum. Svo þegar komið er í mótsleiki þá fer vélin fræga að malla.

Lið Íslands í dag:
12. Ögmundur Kristinsson (Ingvar Jónsson 46)
2. Diego Jóhannesson (Theodór Elmar Bjarnason 65)
3. Jón Guðni Fjóluson
6. Ragnar Sigurðsson (Sverrir Ingi Ingason 46)
9. Viðar Örn Kjartansson (Kjartan Henry Finnbogason 46)
10. Gylfi Þór Sigurðsson
15. Rúnar Már Sigurjónsson
19. Rúrik Gíslason
21. Arnór Ingvi Traustason
23. Ari Freyr Skúlason (Aron Einar Gunnarsson 79)
24. Arnór Smárason (Hjörtur Hermannsson 46)

Hér að neðan eru fleiri myndir úr leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner