„Það var að sjálfsögðu gaman að koma inn á," sagði Kjartan Henry Finnbogason sem spilaði síðari hálfleikinn í 1-1 jafntefli gegn Katar í kvöld.
Ísland spilaði 5-4-1 í síðari hálfleik og Kjartan Henry fékk úr litlu að moða í fremstu víglínu.
„Það er algjört aukaatriði. Við erum að æfa ákveðna hluti og vera tilbúnir þegar við mætum mismunandi liðum. Það var tilgangur ferðarinnar og tilgangurinn með þessum leik. Ég er heiðarlegur með það að við vorum ekki alveg nógu öflugir í dag og við þurfum að gera betur ef við ætlum að standa okkur vel í framhaldinu."

Lestu um leikinn: Katar 1 - 1 Ísland
Kjartan Henry skoraði gegn Tékklandi í síðustu viku. Er hann ánægður með frammistöðu sína í Katar?
„Ég átti ágætis leik síðast og vildi gera betur í dag. Við vinnum og töpum og það á sérstaklega um þetta lið. Ef það eru einn eða tveir sem eru ekki 100% þá getur þetta gerst eins og í dag og það er eitthvað sem þarf að læra af."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni
Athugasemdir