Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. desember 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Man City vonast til að framlengja samning við Guardiola
Mynd: Getty Images
Manchester City vonast til að geta framlengt samning sinn við Pep Guardiola næsta sumar.

Guardiola tók við City sumarið 2016 en hann skrifaði þá undir þriggja ára samning.

City er með ellefu stiga forskot í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið sextán leiki í röð.

Khaldoun Al Mubarak, formaður City, og framkvmdastjórinn Ferran Sorriano halda fundi á vorin þar sem farið er yfir liðið tímabil.

Enskir fjölmiðlar segja frá því í dag að efst á dagskrá á fundinum í vor verð að framlengja samninginn við hinn 46 ára gamla Guardiola.
Athugasemdir
banner