fös 12. janúar 2018 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Moyes: Chicharito er mjög góður leikmaður
Mynd: Getty Images
David Moyes knattspyrnustjóri West Ham segist ánægður með að hafa Javier Hernandez sem möguleika í framherjastöðuna.

Hernandez sem er oft kallaður Chicharito hefur verið orðaður frá West Ham að undanförnu en hann kom til félagsins síðastliðið sumar frá Bayer Leverkusen.

„Formið sem Marko Arnautovic og Michail Antonio voru í þegar ég tók við hefur gert honum erfitt fyrir. Þegar ég kom var hann meiddur og við þurftum því að spila Marko (Arnautovic) og Michail (Antonio) frammi," sagði Moyes.

„Hernandez er mjög góður leikmaður og hann er mjög góður í að klára færin sín. Honum þykir best að fá boltann inn í teiginn og við höfum líklega ekki veitt honum nægilega þjónustu."

West Ham mætir Huddersfield á morgun en þeir eru staddir í 15 sæti ensku úrvalsdeilarinnar með 22 stig.


Athugasemdir
banner
banner