Arda Turan hefur yfirgefið Barcelona og hefur gengið til liðs við toppliðið í Tyrklandi, Istanbul Basaksehir.
Hinn þrítugi Arda Turan gekk í raðir Börsunga árið 2015 eftir góðan tíma hjá Atletico Madrid.
Hann hefur ekki átt jafngóðan tíma hjá Barcelona og hefur lítið fengið að spila í Katalóníu.
Hinn þrítugi Arda Turan gekk í raðir Börsunga árið 2015 eftir góðan tíma hjá Atletico Madrid.
Hann hefur ekki átt jafngóðan tíma hjá Barcelona og hefur lítið fengið að spila í Katalóníu.
Nú hefur hann loksins yfirgefið Barcelona, en hann fer á láni til Basaksehir í tvö og hálft ár.
Þegar lánssamningum lýkur er samningi Turan hjá Barcelona einnig lokið. Barcelona hefur þann möguleika að selja hann ef tilboð berst í hann á meðan hann er í láni.
Athugasemdir