Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. janúar 2018 23:00
Ingólfur Stefánsson
Keita fagnaði ekki marki sínu
Mynd: Getty Images
Naby Keita miðjumaður RB Leipzig skoraði fyrsta mark Leipzig í 3-1 sigri liðsins gegn Schalke í dag. Það vakti athygli að Keita fagnaði ekki marki sínu en hann hefur verið mikið í umræðunni undanfarið.

Keita mun ganga til liðs við Liverpool í lok tímabilsins en orðrómar hafa verið uppi um að hann gæti farið til liðsins nú í janúar eftir að Phillipe Coutinho fór til Barcelona.

Í gær bárust fréttir af því að leikurinn gegn Schalke yrði síðasti leikur Keita með Leipzig en Ralf Rangnick formaður knattspyrnumála hjá liðinu sagði fyrir leikinn að Keita vildi spila með liðinu út tímabilið og myndi gera það.




Athugasemdir
banner
banner
banner