Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. janúar 2018 12:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Bournemouth og Arsenal: Welbeck og Iwobi byrja
Iwobi byrjar þrátt fyrir að hafa verið í fréttum undanfarið.
Iwobi byrjar þrátt fyrir að hafa verið í fréttum undanfarið.
Mynd: Getty Images
Fyrri leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er leikur Bournemouth og Arsenal á heimavelli fyrrnefnda liðsins.

Alexis Sanchez er á förum frá Arsenal og ferðaðist ekki með liðinu í þennan leik. Enskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að Manchester United sé líklegasti áfangastaður Sílemannsins.

Mesut Özil er ekki heldur með Arsenal í dag þar sem hann er að glíma við smávægileg meiðsli. Alex Iwobi, sem komst í fréttirnar í síðustu viku fyrir að hafa verið í partý 36 tímum fyrir tap liðsins gegn Nottingham Forest í enska bikarnum, er í byrjunarliðinu ásam Danny Welbeck og Alexandre Lacazette.

Bournemouth gerir sjö breytingar á byrjunarliði sínu sem gerði 2-2 jafntefli gegn Wigan í FA-bikarnum um síðustu helgi.

Hér að neðan eru bæði byrjunarlið.

Byrjunarlið Bournemouth: Begovic, Francis, Steve Cook, Ake, Adam Smith, Lewis Cook, Gosling, Daniels, Ibe, Fraser, Callum Wilson.
(Varamenn: Boruc, Surman, Pugh, Arter, Afobe, Mousset, Simpson)

Byrjunarlið Arsenal: Cech, Chambers, Mustafi, Holding, Bellerin, Xhaka, Wilshere, Maitland-Niles, Iwobi, Welbeck, Lacazette.
(Varamenn: Ospina, Mertesacker, Ramsey, Walcott, Kolasinac, Elneny, Nketiah)



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner