Stefán Alexander Ljubicic tvö mörk og lagði upp eitt þegar U18 ára lið Brighton sigraði Norwich 5-2 í dag.
Atli Barkarson og Ísak Þorvaldsson spiluðu báðir með Norwich í leiknum. Atli og Ísak byrjuðu báðir leikinn en sá síðarnefndi var tekinn af velli á 76. mínútu.
Stefán var á dögunum lánaður til Bognor Regis Town í ensku utandeildinni.

Stefán fékk rauða spjaldið í fyrsta leik þar og tekur því út þriggja leikja bann þessa dagana.
Hann má hins vegar leika með U18 ára liði Brighton og nýtti tækifærið vel í dag.
Athugasemdir