Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 14. mars 2018 08:30
Hafliði Breiðfjörð
Svona var hann 2016
Nýr HM búningur Íslands kynntur 15. mars klukkan 15:15
Mynd: Errea/Ýmir
Við teljum niður í nýja landsliðsbúninginn, en nú er bara einn dagur þangað til Errea og KSÍ afhjúpa búninginn sem landslið Íslands mun spila í á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar.

Nýi búningurinn verður kynntur formlega á morgun, fimmtudaginn 15. mars klukkan 15:15.

Undanfarna daga hefur Fótbolti.net, í samstarfi við Errea verið að rifja upp hvernig gömlu landsliðsbúningarnir litu út, eða allt frá árinu 2002, en þá spilaði landsliðið í fyrsta skipti í búningi frá Errea.

Í dag er komið að búningnum frá árinu 2016 sem er búningur landsliðsins til dagsins í dag. Þetta er sá stóri, búningurinn sem við vorum í á Evrópumótinu í Frakklandi fyrir tveimur árum og í undankeppninni fyrir HM í Rússlandi.

Leikjahæstir í undankeppni HM 2018
Birkir Már Sævarsson (10)
Gylfi Þór Sigurðsson (10)
Ragnar Sigurðsson (10)
Aron Einar Gunnarsson (9)
Birkir Bjarnason (9)
Hannes Þór Halldórsson (9)
Jóhann Berg Guðmundsson (9)
Kári Árnason (9)
Alfreð Finnbogason (8)
Hörður Björgvin Magnússon (8)
Jón Daði Böðvarsson (8)
Athugasemdir
banner
banner