Lionel Messi lék ekki með Barcelona í gær er liðið vann sannfærandi 2-0 sigur á Malaga í spænsku úrvalsdeildinni.
Messi þurfti að draga sig úr hópnum þar sem hann var staddur á fæðingardeildinni með eiginkonu sinni, Antonella Roccuzzo.
Messi þurfti að draga sig úr hópnum þar sem hann var staddur á fæðingardeildinni með eiginkonu sinni, Antonella Roccuzzo.
Messi staðfesti það, nokkru fyrir leik Börsunga gegn Malaga, að þriðji sonur hans væri kominn í heiminn.
„Velkominn Ciro! Ég þakka Guði fyrir að allt fór eins og í sögu. Mömmu hans og honum líður vel. Við erum ótrúlega ánægð," skrifaði Messi við mynd á Instagram.
Messi og Antonella eiga fyrir synina Mateo, sem er tveggja ára og Thiago, sem er fimm ára gamall.
Athugasemdir