þri 13. mars 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Debuchy valinn fram yfir Neymar
Mathieu Debuchy.
Mathieu Debuchy.
Mynd: Getty Images
Mathieu Debuchy, fyrrum bakvörður Arsenal, hefur verið kosinn leikmaður febrúar mánaðar í frönsku úrvalsdeildinni.

Debuchy er í dag á mála hjá Saint-Etienne en hann skoraði tvívegis í febrúar mánuði.

Hann fékk 47% atkvæða í kjörinu á undan Neymar sem var með 34% og Benjamin Lacomte markverði Montpellier sem var með 19%.

Neymar skoraði tvö mörk og lagði upp tvö í febrúar en það dugði ekki til að vinna verðlaunin.

Debuchy er fyrsti varnarmaðurinn sem er valinn leikmaður mánaðarins í frönsku úrvalsdeildinni síðan Thiago Silva fyrirliði PSG gerði það árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner