Sergio Busquets leikmaður Barcelona segir að erfitt væri að sjá Lionel Messi spila með öðru liði. Messi hefur verið orðaður við Manchester City síðan Pep Guardiola tók við liðinu.
„Messi á heima í Barcelona, ég held að hann elski að vera hér hjá okkur. Við erum með frábæra leikmenn og tökum þátt í öllum keppnum. Að sjá hann fara í annan klúbb væri mjög erfitt, það er líka mjög erfitt að fara frá Barcelona því við höfum allt sem leikmenn vilja," sagði Busquets.
Messi var ekki í leikmannahóp Börsunga þegar þeir mættu Malaga um helgina. Messi þurfti að draga sig úr hópnum þar sem hann var staddur á fæðingardeildinni með eiginkonu sinni, Antonella Roccuzzo.
„Ég er viss um að Messi verði tilbúinn í leikinn gegn Chelsea á morgun. Hann ætti að vera vel úthvíldur og vonandi getur hann hjálpað okkar að komast áfram í 8-liða úrslit", sagði Busquets að lokum.
Barcelona mætir Chelsea á morgun í seinni viðureign liðanna í Meistaradeildinni. Fyrri leikurinn endaði 1-1 á Stamford Bridge, þar sem Lionel Messi skoraði jöfnunar mark Börsunga eftir mistök í vörn Chelsea manna.
Athugasemdir