Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. mars 2018 18:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
PSG færist nær Frakklandsmeistaratitlinum
Mbappe skoraði bæði mörk PSG.
Mbappe skoraði bæði mörk PSG.
Mynd: Getty Images
PSG 2 - 1 Angers
1-0 Kylian Mbappe ('12)
2-0 Kylian Mbappe ('25)
2-1 Karl Toko Ekambi ('75)

Kylian Mbappe sá um Angers fyrir Paris Saint-Germain í leik sem var að ljúka í frönsku úrvalsdeildinni.

Mbappe skoraði bæði mörk PSG í 2-1 sigri.

Neymar er enn fjarverandi vegna meiðsla. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær Neymar snýr aftur. Hann fór í aðgerð á dögunum og verður skoðaður aftur eftir nokkrar vikur.

PSG féll úr Meistaradeildinni gegn Real Madrid án hans en allar líkur eru á því að liðið endurheimti franska meistaratitilinn af Mónakó án Brasilíumannsins.

Eftir þennan sigur í dag með 17 stigum meira en liðið í öðru sæti, Mónakó. PSG á eftir að leika átta leiki en Mónakó níu leiki.
Athugasemdir
banner