Manchester United hefur þegar hafið undirbúning sinn fyrir sumargluggann en njósnarar félagsins hafa verið að fylgjast grannt með Sergej Milinkovic-Savic.
Þessi 23 ára leikmaður hefur leikið mjög vel á þessu tímabili og hefur fest sig í sessi sem einn besti miðjumaður Evrópuboltans.
Þessi 23 ára leikmaður hefur leikið mjög vel á þessu tímabili og hefur fest sig í sessi sem einn besti miðjumaður Evrópuboltans.
Með ellefu mörk og fimm stoðsendingar í öllum keppnum á þessu tímabili. Lazio er sem stendur í fjórða sæti.
MailOnline segir að njósnarar United hafi mætt á leið Lazio gegn RB Salzburg í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar til að fylgjast með Sergej, eins og leikmaðurinn er kallaður.
Sergej og félagar fundu sig ekki í umræddum leik og töpuðu 4-1.
United ku hafa sýnt leikmanninum áhuga í nokkurn tíma en verðmiðinn sem Lazio hefur sett á hann er ansi hár, 89 milljónir punda.
Athugasemdir