ÍA hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að samið hafi verið við ungar og efnilegar Skagastúlkur.
Penninn er á lofti á Akranesi og hafa María Björk Ómarsdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir, Erla Karítas Jóhannsdóttir, og Róberta Ísólfsdóttir skrifað undir tveggja ára samning við ÍA
Penninn er á lofti á Akranesi og hafa María Björk Ómarsdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir, Erla Karítas Jóhannsdóttir, og Róberta Ísólfsdóttir skrifað undir tveggja ára samning við ÍA
„Þær eru ungar og efnilegar og hafa spilað mikilvægt hlutverk í leikmannahóp mfl kvenna í vetur," segir í tilkynningu ÍA.
ÍA hefur litið vel út á undirbúningstímabilinu en liðið er að fara inn í sitt annað tímabil í 1. deildinni.
Í fyrra endaði liðið í fimmta sæti 1. deildar kvenna.
Athugasemdir