þri 17. apríl 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekki enn komið á hreint með Iniesta
Mynd: Getty Images
Framtíð Andres Iniesta er ekki enn komin á hreint.

„Það er ekkert víst enn," sagði Ernesto Valverde, stjóri Barcelona í gær. „Ég veit ekki hvað mun gerast en hver er ég að tjá mig um þetta. Það er hann sem mun ákveða þetta. Ég vil ekki fara fram úr mér og vera eitthvað að spekúlera."

Iniesta er kominn á aldur, hann er orðinn 33 ára gamall. Hann hefur ekki náð að klára marga leiki fyrir Barcelona á þessu tímabili og eru góðar líkur á því að hann prófi eitthvað nýtt eftir þetta tímabil. Hann hefur jú, verið hjá Barcelona allan sinn feril.

Iniesta hefur verið sterklega orðaður við kínversku Ofurdeildina og gæti farið svo að hann endi þar eins og svo margir aðrir.

Þessi magnaði miðjumaður mun taka ákvörðun fyrir 30. apríl.
Athugasemdir
banner
banner