Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. apríl 2018 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Á ég að velja þá vegna þess að þeir eru andlitsfríðir?
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho er ósáttur með sína drengi í Manchester United eftir að liðið tapaði 1-0 fyrir West Brom, slakasta liði ensku úrvalsdeildarinnar á heimavelli á sunnudaginn.

Mourinho hefur heitið því að þeir leikmenn sem léku illa gegn West Brom verði ekki í byrjunarliðinu gegn Tottenham á laugardaginn. Það er undanúrslitaleikur í bikar.

„Ég mun aðeins velja leikmenn út frá frammistöðu. Hvernig velur knattspyrnustjóri lið sitt? Ég vel bara lið mitt út frá frammistöðu og engu öðru. Eða viljið þið kannski að ég velji út frá verði eða launum. Viljiði kannski að ég velji leikmenn vegna þess að þeir eru andlitsfríðir?" sagði Mourinho.

United leikur gegn Bournemouth á miðvikudaginn, fyrir leikinn gegn Tottenham. Þar munu nokkrir leikmenn fá sénsinn til að sanna sig fyrir leikinn stóra gegn Tottenham.

United á aðeins möguleika á einum titli á þessum tímabili en það er FA-bikarinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner