Páll Árnason, þjálfari Fjölnis, var ánægður með frammistöðu leikmanna sinna þrátt fyrir 2-1 tap gegn Keflavík í Inkasso-deild kvenna.
Fjölnir er stigalaust eftir tvær umferðir, en liðið tapaði fyrir Þrótti R. í fyrstu umferð.
Fjölnir er stigalaust eftir tvær umferðir, en liðið tapaði fyrir Þrótti R. í fyrstu umferð.
„Ég er ógeðslega stoltur af stelpunum. Stígandinn frá því í seinasta leik er geggjaður," sagði Páll eftir tapið.
„Þetta var leikur sem gat dottið báðum megin, það munaði mjög litlu og ég er heilt yfir mjög sáttur þrátt fyrir tap."
Fjölnir setti Keflvíkinga í vandræði með góðri pressu en Páll segir að stelpurnar hafi ekki nýtt færin nægilega vel.
„Leikplanið heppnaðist fullkomlega að því leyti, það vantaði hjá okkur í dag að refsa meira. Við vorum að fá þessi hálffæri og tókum skrítnar ákvarðanir stundum en það verður bara að laga fyrir næsta leik."
Athugasemdir